Bókavörður er Oddný Finnbogadóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur.
Í tölvum skólans er hægt að leita að bókum á safninu gegnum Metravefinn (þessi tengill virkar aðeins í tölvum skólans).
Bókasafnsfræðingur er forstöðumaður bókasafns. Hann hefur umsjón með daglegum rekstri bókasafns skólans, bókakosti, geisladiskum, myndböndum og öðrum safnkosti og lestrarsölum. Hann kennir nemendum og kennurum safnnotkun og starfar með þeim að verkefnum sem krefjast sérstakrar þjónustu bókasafnsins. Bókasafnið er staðsett á 2. hæð Bóknámshússins.
Athugið að hjá Blindrabókasafni Íslands (www.bbi.is) er hljóðbókasafn fyrir sjóndapra og lesblinda sem allir nemendur geta nýtt sér á einfaldan máta með því að hlaða niður hljóðbókum af safninu. Nánari upplýsingar eru á vef Blindrabókasafnsins.