Öflugt nemendafélag er innan Fjölbrautaskólans. NFNV sér um útgáfu á skólablaðinu Molduxa og einnig rekstur útvarpsstöðvarinnar RásFás. Opnir dagar á vorönn eru hápunkturinn í félagslífinu. Á hverri önn eru skólaheimsóknir en vinaskólar FNV eru Menntaskólinn á Egilsstöðum og Menntaskólinn á Laugavatni.

Íþróttalíf skólans er mjög samtvinnað starfsemi íþróttafélaganna á Sauðárkróki og er nemendum gefinn kostur á að æfa og starfa með þeim. Nemendafélagið tekur jafnan þátt í framhaldsskólamótum í íþróttum s.s. knattspyrnu og frjálsum íþróttum.

Reglulega eru haldin böll og diskótek á vegum nemendafélagsins og eru þau jafnan
vel sótt. Öll meðferð og neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð á samkomum
í nafni skólans eða nemendafélagsins.

Leiklistin hefur blómstrað undanfarin ár. Flutt hafa verið verk, samin, leikin og leikstýrð af nemendum á skemmtunum á vegum skólans. Uppsetning á leikriti / söngleik er að verða árlegur viðburður. Mikil aðsókn er í hlutverk og allir geta verið með, því margt þarf að gera; leika, syngja, sminka/farða, smíða og finna leikmuni.  Þá eru hljóðmenn og ljósamenn ómissandi. Þetta er viðburður sem tekur bróðurpart fyrri annarinnar og uppskeran er vel tímans virði.  Haustið 2010 varð söngleikurinn Sextán fyrir valinu og haustið 2011 söngleikurinn Gauragangur.


Þess má geta að í kringum stúdentsefni FNV er einnig mikið félagslíf og standa þau reglulega fyrir ýmsum skemmtunum