»
»
»
Félagslíf nemendafélagsins

2.9 Félagslíf á vegum nemendafélagsins

2.9.1 Klúbbar


Í byrjun haustannar eru venjulega haldnir aðalfundir í ýmsum klúbbum til þess að sem flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi.  Metakvöld og Menningarkvöld eru skemmtikvöld sem haldin eru  á haustönn  Nemendafélagið gefur vikulega út frétta Nemendafélagið stendur fyrir ýmsum uppákomum og ferðalögum s.s. skautaferð til Akureyrar, snjóþoturalli og menningarferðum af ýmsu tagi.  Þá gefur nemendafélagið út pésann Ómen, sem er fullur af skemmtilegu efni, eins og fréttum úr félagslífinu og fleira þess háttar.

Tónlistarklúbbur: Tónlistarklúbbur er fyrir þá sem áhuga hafa á hljóðfæraleik, hljómsveitastarfsemi og öðru sem tengist tónlist.
Tónlistarfólkið hefur haft aðstöðu til æfinga í kjallara Bóknámshússins. Hafa þessir aðilar komið fram af og til á hinum ýmsu skemmtunum. Um lok haustannar er haldið tónlistarkvöld, en þar koma nemendur skólans fram og flytja tónlist, bæði frumsamda og eftir aðra. Segja má að þetta sé hápunkturinn í starfsemi þessa klúbbs. Einnig hefur tónlistarklúbburinn staðið fyrir undankeppni Söngvarakeppni framhaldsskólanema.

Fás-Fákar: Hestamannafélagið hefur verið mög virkt og gerir ýmislegt skemmtilegt. Ýmis námskeið eru haldin á vegum klúbbsins. Árshátíð Fás-Fáka er jafnan vel sótt og skemmtileg. Fás-Fákar hafa tekið þátt í framhaldsskólamótinu í hestaíþróttum.

Bridge- og skákklúbbur: Spilað er á vegum bridge -og skákklúbbs einu sinni í viku. Einnig hafa bridgeáhugamenn starfað með Bridgefélagi Sauðárkróks og spilað með þeim vikulega.

Vídeóklúbbur: Hefur það að markmiði að gera stuttmynd. Handrit hafa verið samin og tökur gengið eftir efnum og aðstæðum hverju sinni.

Leiklistarklúbbur: Leiklistin hefur blómstrað undanfarin ár. Flutt hafa verið verk, samin, leikin og leikstýrð af nemendum á skemmtunum á vegum skólans. Uppsetning á leikriti / söngleik er að verða árlegur viðburður. Mikil aðsókn er í hlutverk og allir geta verið með, því margt þarf að gera; leika, syngja, sminka/farða, smíða og finna leikmuni.  Þá eru hljóðmenn og ljósamenn ómissandi. Þetta er viðburður sem tekur bróðurpart fyrri annarinnar og uppskeran er vel tímans virði.  Haustið 2003 varð söngleikurinn Wake me up before you gogo fyrir valinu og haustið 2004 söngleikurinn Thriller.

Ljósmyndaklúbbur: Ljósmyndaklúbburinn hefur aðstöðu á heimavistinni þar sem hægt er að framkalla myndir og annað þess háttar. Haldin eru námskeið í ljósmyndun og framköllun. Ljósmyndamaraþon er haldið í tengslum við opna daga og ljósmyndasýning haldin í kjölfarið.
2.9.2 Fjölmiðlar nemendafélagsins

Rás-Fás er útvarpsstöð í eigu nemenda. Þar er öllum frjálst að gerast dagskrárgerðarmenn og tæknimenn sem hafa áhuga á slíkum störfum. Útvarpið er staðsett í Bóknámshúsinu og er aðstaðan þar mjög góð, bæði hvað varðar tækjakost og auk þess útvarpið nokkuð gott geisladiska- og plötusafn. Send er út dagskrá á kvöldin alla virka daga. Einnig sér RásFás um m.a. um beinar útsendingar frá útileikjum Tindastóls í körfubolta og bæjarstjórnarfundum Sauðárkróksbæjar.

Molduxi er skólablað nemenda. Kosin er ritnefnd að hausti og starfar hún að útgáfu blaðsins en það er gefið út í lok hvorrar annar. Þar gefst nemendum kostur á að senda inn efni og koma skoðunum sínum á framfæri.

2.9.3 Opnir dagar
Það má í raun segja að opnu dagarnir séu hápunktur félagslífsins. Þeir eru venjulega haldnir á vorönn. Á opnu dögunum er hefðbundið kennsluform stokkað upp og nemendum boðið upp á ýmis námskeið, fyrirlestra, hóp- og verkefnavinnu, kaffihús, gestakokka í mötuneytinu og íþróttamót. Rás-Fás sendir út og greinir frá viðburðum. Í kjölfarið á Opnum dögum á vorönn er haldin vegleg árshátíð á vegum nemendafélagsins. Þetta er stærsta og flottasta kvöld skólaársins og ekkert er til sparað við undirbúninginn.

2.9.4 Skólaheimsóknir
Á hverri önn eru skólaheimsóknir og eru vinaskólar okkar ME og ML. Í þessum skólaheimsóknum er keppt í ýmsum íþróttagreinum, bæði hefðbundnum og óhefðbundnum. Haldnar eru kvöldvökur með tilheyrandi skemmtiatriðum, spurningakeppni, ræðukeppni og fleiru slíku. Skólaheimsóknum lýkur svo yfirleitt með sameiginlegum dansleik.

2.9.5 Íþróttir
Íþróttalíf skólans er mjög samtvinnað starfsemi íþróttafélaganna á Sauðárkróki og er nemendum gefinn kostur á að æfa og starfa með þeim. Nemendafélagið tekur jafnan þátt í framhaldsskólamótum í íþróttum s.s. knattspyrnu og frjálsum íþróttum. Einnig eru haldin smærri mót innan skólans s.s. brautamót í knattspyrnu. Meðal íþrótta má þar nefna frjálsar íþróttir, körfubolta, fótbolta, bandí, Dodgeball, hestaíþróttir, skíði og sund.  Öll aðstaða til íþróttaiðkunar er með því besta sem völ er á.  Loks geta nemendur fengið aðgang að frjálsum tímum í íþróttahúsinu.

2.9.6 Stúdentsefni
Þess má geta að í kringum stúdentsefni FNV er einnig mikið félagslíf og standa þau reglulega fyrir ýmsum skemmtunum jafnframt því sem þeir standa fyrir fjáröflunum fyrir brautskráningarferð.
Öll meðferð og neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð á samkomum í nafni skólans eða nemendafélagsins. Brot á skólareglum getur varðað brottrekstur úr skóla.