20. febrúar 2012 - 08:32
Mikill áhugi er á námi í FabLab stofu skólans þessa dagana og stunda nú 60 manns nám í áfanganum FAB 103, en þar er um að ræða nemendur í dagskóla, kvöldskóla og helgarnámi. FabLab stofan (stafræn smiðja) er samstarfsverkefni FNV, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Starfsem Fab Lab stofunnar gengur út á að gefa þeim sem þangað koma tækifæri til að gera hugmynd að veruleika og óhætt er að segja að fjölbreytni hugmyndanna sem þar verða að veruleika eigi sér lítil takmörk.