Flýtileiðir
26. janúar 2012 - 13:23
Heilsueflandi dagur í FNV
Mánudaginn 30. janúar

Mánudaginn 30.  janúar verður hefðbundin stundatafla aflögð og boðið upp á dagskrá undir merkjum Heilsueflandi skóla sem hefst kl. 08:30. Af því tilefni verður fjölbreytt dagskrá þar sem  boðið verður upp á fyrirlestra og vinnustofur sbr. meðfylgjandi dagskrá.

Í hádeginu verður boðið upp á heilsufæði á matsal heimavistar gegn vægu gjaldi eða kr. 600. Einnig verða ávextir á borðum í bóknámshúsinu.

Þennan dag gerist  FNV formlegur þátttakandi í Heilsueflandi framhaldsskóla með athöfn á sal skólans kl. 13:15, en þá verður fáni verkefnisins dreginn að húni og vatnsbrúsum dreift til nemenda. 

Nemendum verður skipt í hópa og upplýsingar þar að lútandi hengdar upp á göngum bóknámshúss þar sem dagskrá dagsins fer fram. 

Skyldumæting er á alla viðburði skv. meðfylgjandi dagskrá . Mæti nemandi ekki  fær hann fjarvist í öllum áföngum sem hann á að mæta í þennan  dag. Kennarar verða á staðnum og taka manntal.

files/fnv/gogn/Timabundid/Forvarnardagur.jpg