Fundargerðir

Aðalfundur Foreldrafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.

Fyrsti fundur nýstofnaðs félags var haldinn miðvikudaginn 17. sept 2008.Mættir voru Ari Jóhann Sigurðsson, Guðbjörg Árnadóttir, Jón Eðvald Friðriksson, Margrét Jónsdóttir, Sigrún Benediktsdóttir, Stefanía Birna Jónsdóttir og Þorbjörn Ágústsson, sem höfðu samþykkt að starfa í stjórn félagsins. Fundarritari var Guðbjörg Árnadóttir.

Dagskrá fundar:

1.Kvöldverður í boði Fjölbrautaskólans
2.Kosning formanns og stjórnar
3.Lög félagsins kynnt og borin undir atkvæði
4.Almenn kynning á Foreldrafélögum í framhaldsskólum
5.Önnur mál.

1. Eftir góðan kvöldverð og nokkur orð frá Jóni skólameistara var haldið í Verknámshúsið og formlegur fundur hófst.

2. Ari Jóhann Sigurðsson samþykkti að taka að sér formannshlutverkið og var það samþykkt einróma.Aðrir aðalmenn í stjórn eru Guðbjörg Árnadóttir, Jón Eðvald Friðriksson, Margét Jónsdóttir og Þorbjörn Ágústsson. Varamenn eru Jónína Lýðsdóttir, Sigrún Benediktsdóttir og Stefanía Birna Jónsdóttir.

3. Lög sem fengin voru frá Samtökum Heimilis og Skóla voru lögð fyrir fund og löguð að þörfum félagsins, og að lokum samþykkt. (Sjá lög Foreldrafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra).

4.Aðalheiður Reynisdóttir, sem hefur unnið ötullega að því að koma þessu félagi á laggirnar, hefur kynnt sér starfssemi foreldrafélaga í framhaldsskólum og sagði fundarmönnum frá.Hún benti á að farsælast virtist starfið vera þar sem félögin störfuðu sem hagsmunafélög nemenda, foreldra og skóla, og hvettu til aukins samráðs og samstarfs þessara aðila.Hún benti á að foreldrafélög í framhaldsskólum væru til komin vegna laga um hækkaðan sjálfræðisaldur.Hún kynnti niðurstöður könnunar sem Elín Thorarensen gerði og heitir „Staða samstarfs heimila og framhaldsskóla á Íslandi í upphafi 21. aldar.“

5. a) Rætt var um einelti og stefnu skólans í eineltismálum og hve mikilvægt væri að vera alltaf á verði.

b) Rætt um hvernig best væri að koma upplýsingum til foreldra og talið best og einfaldast að gera það í gegnum heimasíðu skólans þar sem koma á upp sérstöku svæði fyrir félagið.

c) Ákveðið var að byrja á því ræða við stjórn nemendafélagsins og koma á samvinnu við hana.

d) Jón Eðvald vakti athygli á því að í lok september ætti að stofna Félag Stuðningsfyrirtækja Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og lagði til að foreldrafélagið yrði sýnilegt þá.

e) Þar sem stjórnarmenn koma víða að og langt á milli manna var ákveðið að hafa aðallega samband með tölvupósti.Eins var ákveðið að hvetja alla þá sem hafa eitthvað til málanna að leggja að hafa samband með þeim hætti.

Dagskrá fundarins var tæmd og fleira ekki gjört. Fundi slitið.

Guðbjörg Árnadóttir.

2.  fundur Foreldrafélags FNV.
Haldinn í húsnæði FNV á Sauðárkróki 14. sept. 2011 kl. 17.00.
Mætt voru undirrituð, stjórn og varastjórn foreldrafélagsins ásamt fulltrúum stjórnar skólans.
Gísli Sigurðsson formaður bauð fundarmenn velkomna og kastaði fram spurningu til skólastjórnenda hvert hlutverk foreldra væri s.k. þeirra hugmyndum.
Skólameistari Ingileif Oddsdóttir þakkaði fundarmönnum áhugann og vonaðist eftir fjölbreyttu og öflugu samstarfi.
Sara Níelsdóttir umsjónarmaður félagsmála nemenda og kennari við FNV  reifaði  s.s.
ferðir og skemmtanir nemenda, en stór hluti þeirra er ólögráða og á ábyrgð foreldra.
Þorkell Þorsteinsson aðstoðarskólameistari sagði að sitt álit á aðkomu foreldra væri einfalt, en það væri að gera góðan skóla betri og samkeppnishæfari gagnvart öðrum skólum og aðlaðandi vinnustað.
Umræður um tölvunotkun og netaðgang, en þráðlaust net skólans er ekki öflugt.
Skólameistari kom með skýringar á, en ætlast er til að nemendur noti tölvur skólans til vinnu á netinu.
Rætt var um aðkomu foreldra ferðum nemenda.  Þorkell hrósaði nemendum skólans í ferðum á vegum hans og lýsti ánægju með þá ábyrgð sem þau hafa sýnt.
Þorkell fór yfir uppbyggingu félagsmála nemenda, og rætt var um hvort foreldrar gætu stutt við frekari þróun og vakningu og hvernig.
Foreldrafélagð tók vel í að manna ferðir ásamt fulltrúum skólans.
Rætt um skilgreiningu á hvaða skemmtanir séu á vegum skólans.
Skólastjórnendur útskýrðu vistarreglur og hvernig tekið er  á agabrotum.  Gott samstarf er við lögregluna sem telur heimavistina ekki valda þeim áhyggjum. Einnig hefur lögreglan heimild til að koma með fíkniefnahund í skólann og vistina hvenær sem er.
Rætt var um möguleika á námskeiði fyrir foreldra og nemendur varðandi fíkniefnaheiminn
og jafnvel átröskun og þess háttar sjúkdóma, einnig tölvufíkn og spilafíkn.
Nemendur eru duglegir að leita til skólans með sín vandamál og nýta sér þá þjónustu sem í boði er s.s. sálfræðiaðstoð, en skólinn hefur tilvísanakerfi á geðlækna og sálfræðing,  sem virkar vel.
Þorkell kynnti aðkomu skólans að heilsueflingu Lýðheilsustofnunar og hvernig má innleiða næringarþemað hjá nemendum og umhverfi.
Ákveðið að stjórnin haldi fund með stjórn nemendafélagsins innan tíðar.
Fleira ekki gert og fundi slitið.

Gunnar Rögnvaldsson,  Gísli Sigurðsson,  Hjördís Ingimarsdóttir,  Ingileif Oddsdóttir
Arna Björnsdóttir, Hanna Sig. H. Gígja Sig., Guðmundur Tómasson, Þorkell V. Þorsteinsson,
Sara Níelsdóttir, Gestur Stefánsson.

Fundur 26. okt. 2011  kl. 17.00
 Mætt eru Gísli, Arna, Hanna , Gígja og Gestur.
Bréf sem barst stjórn frá foreldrum var tekið fyrir og beiðnin samþykkt.
Önnur mál:  
Ítreka við Kela að fá netfangalista.
Og  bjóða nemendafélagi aðstoð v/heimsóknar ME  um komandi helgi.
                    Fundi slitið kl. 18.00


Gísli Sig.,  Gestur Stefánsson.,  Hanna Sig.,  Arna Björns.,  H. Gígja Sig.