HEIMAVIST

Við skólann er starfrækt heimavist sem rúmar 142 nemendur á aðalvist. Á aðalvistinni, sem staðsett er rétt norðan Bóknámshúss, er mötuneyti skólans. Hebergin eru flest tveggja manna með salerni og sturtu.

HEIMAVISTARSTJÓRAR
Heimavistarstjórar annast, í umboði skólameistara, daglegt eftirlit með nemendum á heimavist og sjá til þess að reglum heimavistar sé framfylgt.

REGLUR HEIMAVISTAR

1. gr.
Heimavist Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og útibú hennar eru heimili nemenda og skulu þeir njóta þar heimilisfriðar. Markmið þessara heimavistarreglna er að tryggja hvíldar- og vinnufrið vistarbúa og vera til leiðsagnar ef heimilisfriðnum er stefnt í hættu.

2. gr.
Skólameistari fer með yfirstjórn heimavistar og vistarstjórar í umboði hans. Vistarbúum ber að fara að fyrirmælum þeirra í öllu sem varðar umgengni á heimavist og þessum heimavistarreglum. Heimavistarstjórn er heimilt að setja sérreglur um útibú heimavistar. Allir heimavistarbúar eru skyldugir til að sækja vistarfundi sem skólameistari, vistarstjóri eða heimavistarráð boða. Heimavistarstjórn skal halda gerðabók um störf sín.

3. gr.
Skólameistari, vistarstjórar og næturverðir eiga aðgang að herbergjum vistarbúa og eftirlitsmyndavélabúnaði á göngum og í anddyri hvenær sem er til eftirlits.

4. gr
Heimavistarstjórn skipa: Skólameistari, vistarstjórar, þrír trúnaðarmenn nemenda og þrír til vara kosnir af nemendum í apríl mánuði ár hvert og forstöðumaður mötuneytis þegar málefni mötuneytis er á dagskrá. Heimavistarráð er skipað sömu aðilum öðrum en skólameistara. Við kosningu trúnaðarmanna skal þess gætt að fulltrúar séu af sitt hvoru kyni. Starfstími fulltrúa nemenda hefst í byrjun næstu annar eftir að þeir hafa verið kosnir og lýkur við lok skólárs. Hafi nemandi fengið áminningu á skólaárinu vegna brota á reglum heimavistar telst hann ekki kjörgengur til trúnaðarstarfa á heimavist. Heimavistarstjórn kemur saman eigi sjaldnar en tvisvar á önn.

5. gr
Hver vistarbúi skal annast ræstingu á herbergi sínu, sturtuklefa og salerni. Herbergi skulu þrifin minnst einu sinni í viku. Vistarbúa er ekki heimilt að ganga um innan vistarinnar á útiskóm. Heimavistarstjórn getur ákveðið nánar um frekari ræstingu á heimvistarhúsnæðinu á kostnað nemanda ef ræsting er ekki talin viðunandi að hennar mati. Nemendum er skylt að halda umhverfi vistarinnar hreinu. Vistarstjórar geta gert sérhverjum nemanda að hreinsa lóðina eftir þörfum eða laga til innan vistar.

6. gr.
Hver nemandi er ábyrgur fyrir að herbergi það, sem hann gistir, sé í sama horfi í annarbyrjun og annarlok. Nemendur eru bótaskyldir fyrir skemmdum, sem þeir kunna að valda og skulu þeir greiða tryggingargjald að upphæð kr. 6.000-, sem þeir fá endurgreitt í annarlok, ef engar skemmdir eru eða vanþrif, sbr. 4 grein. Skemmdir á húsum eða munum heimavistar skal tilkynna vistarstjóra, næturverði eða vistarráði heimvistar. Verði nemandi uppvís að þjófnaði á eigum eða munum vistarbúa eða starfsmanns skólans, ber að vísa honum af vist. Nemendur eru ábyrgir fyrir eigum sínum öllum. Nemendur skulu læsa dyrum að herbergjum sínum fari þeir frá. Skólinn tryggir hvorki skófatnað nemenda né annan fatnað.

7. gr.
Vistarbúar skulu ávallt gæta þess að valda ekki öðrum ónæði, t.d. með ærslum eða öðrum hávaða m.a. frá hljómflutningstækjum, útvarpi, sjónvarpi, tölvu eða á annan hátt. Eftir kl. 19:00 á að vera næði til heimanáms og frá miðnætti til klukkan 07:00 skal vera alger næturró. Heimsóknir nemenda sín á milli eru óheimilar á þessum tíma án sérstaks leyfis vistarstjóra og gilda þá sömu ákvæði og um næturgesti.

8. gr.
Heimavistinni er lokað kl. 24:00 alla virka daga og skulu ósjálfráða vistarbúar vera komnir inn fyrir lokun. Nemendur sem orðnir eru sjálfráða skulu vera komnir inn á heimavist fyrir kl. 02:00. Um helgar skulu nemendur vera komnir inn á heimavist fyrir kl. 04:00. Vistarstjórum er heimilt að ákveða annan lokunartíma telji þeir ástæðu til. Ætli ósjálfráða nemandi að vera fjarverandi um nætursakir þarf forráðamaður að gefa leyfi fyrir því. Sjálfráða vistarbúar skulu tilkynna vistarstjóra eða næturverði um slíka fjarveru.

9. gr.
Gestir á heimavist skulu fara eftir þessum heimavistarreglum og er hver vistarbúi ábyrgur fyrir sínum gesti. Engar heimsóknir eru leyfðar eftir kl. 24:00. Sæki nemandi um leyfi til að hafa næturgest getur vistarstjóri heimilað það. Leyfi herbergisfélaga verður að liggja fyrir áður en slíkt er heimilað og forráðamanna ef nemandi er ekki sjálfráða.

10. gr.
Fari fjarvistarstig nemanda í fullu námi yfir 150 stig á önn eða nemandi vanrækir nám sitt, fyrirgerir hann rétti sínum til heimvistar. Vistarstjóri fylgist með viðveru nemenda og gerir ráðstafanir ef tilefni gefst.

11. gr
Reykingar eru stranglega bannaðar í heimvistarhúsnæði og á lóð heimavistarinnar samkvæmt landslögum.

12. gr.
Neysla og geymsla áfengis eða umbúða þess er stranglega bönnuð í húsakynnum heimavistar og á lóð hennar. Sama gildir um önnur vímuefni. Þá er nemanda óheimilt að dvelja á heimvistinni undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Skólinn stendur fyrir reglubundnum og fyrirbyggjandi aðgerðum svo sem utanaðkomandi eftirliti af hálfu lögreglu a.m.k. einu sinni á önn.

13. gr.
Starfi þvottahús við heimavistina, skal heimavistarstjórn staðfesta reglur um starfsemina.

14. gr.
Vistun gæludýra á heimavist er bönnuð. Þó getur heimavistarstjórn veitt undanþágu frá þessu ákvæði.

15. gr.
Brot á sérhverri grein þessara reglna varðar áminningu eða brottrekstur eftir atvikum.

16. gr.
Vistarbúar skulu hafa reglur heimavistar uppi við á herbergjum sínum. Brjóti ósjálfráða nemandi þessar reglur ber skólanum að gera forráðmanni viðvart um eðli brotsins og viðurlög. Reglur þessar gilda frá og með útgáfudegi og um leið falla þá úr gildi reglur frá 26. nóvember 2002.

Sauðárkróki 1. mars 2004
Jón F. Hjartarson, skólameistari.