Flýtileiðir
Nýjustu Fréttir
21. febrúar 2012 - 19:36

Opnir dagar hefjast á þriðjudaginn 28. feb og standa út vikuna og  lýkur með glæsilegri árshátíð Nemendafélagsins á föstudagskvöldið.

21. febrúar 2012 - 12:30

Þriðjudaginn 28. febrúar verður farið í ferð um Skagafjörð. Farið verður frá bóknámshúsi FNV með rútu kl. 09:00 um Hegranes til Hóla með tilheyrandi stoppum á leiðinni. Á Hólum verður staðurinn skoðaður og snæddur hádegisverður.

20. febrúar 2012 - 08:51

Fimmtudaginn 23. febrúar og föstudaginn 24. febrúar fellur kennsla niður vegna miðannarfrís. Kennsla hefst skv. stundaskrá mánudaginn 27. febrúar og opnir dagar hefjast þriðjudaginn 28. febrúar.

20. febrúar 2012 - 08:42

Söngkeppni FNV var haldin með miklum glæsibrag síðastliðið föstudagskvöld.
Keppnin var geysihörð og báru María Ósk Steingrímsdóttir og Margrét Petra Ragnarsdóttir sigur úr bítum með Dance with Somebody. Þær munu keppa fyrir hönd skólans í Söngkeppni Framhaldsskólanna í apríl.