Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra Skólanámskrá
INNGANGUR
1.0 Skólanámskrá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
1.0.1 Leiðarljós nemenda Þessi skólanámskrá er ætluð öllum þeim sem vilja kynna sér starfsemi skólans og skipulag hans. Skólanámskráin er ómissandi fyrir nemendur og starfsfólk skólans. Nemendur þurfa ætíð að hafa aðgang að henni þegar þeir ganga frá námsáætlun og námsvali. Skólanámskráin er starfsfólki nauðsynleg til leiðsagnar í starfi. Skólanámskráin er öllum aðgengileg á heimasíðu hans www.fnv.is.
1.0.2 Skipulag skólanámskrár
1. kafli: Almennur inngangskafli. 2. kafli: Skipulag skólans og skólareglur. 3. kafli: Námsbrautalýsingar. 4. kafli: Áfangalýsingar.
1.1 Nám í áfangaskóla
1.1.1 Markmið náms Markmið náms á framhaldsskólastigi er í megindráttum þríþætt: 1. Að veita nemendum almenna menntun sem nýtist í daglegu lífi. 2. Að undirbúa nemendur til áframhaldandi náms í sérskólum eða háskólum. 3. Að undirbúa nemendur til ákveðinna starfa
1.1.2 Skipulag náms Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki starfar eftir áfangakerfi. Í því felst að námsefni í einstökum námsgreinum er skipt niður í afmarkaða áfanga sem kenndir eru eina önn í senn. Tvær jafngildar annir eru á hverju skólaári, haustönn og vorönn. Frá vori 2004 er hvorri önn skipt í tvær lotur. Í lok hvorrar lotu fer fram námsmat sbr. gr. 2.7.7.
1.1.3 Námseiningar Allt nám í skólanum er metið til námseininga. Auðkenni áfanga eru þrír bókstafir og fjórir tölustafir. Bókstafirnir tákna námsgrein. Fyrsta talan táknar hvar í röðinni áfangi er innan námsgreinar. Önnur talan er notuð til ýmiss konar aðgreiningar innan greinar. Þriðja talan segir til um einingafjölda áfangans. Fjórða talan táknar fjölda kennslustunda (40. mín) á viku í áfanganum. T.d. ÍSL1036 er fyrsti almenni áfanginn í íslensku, gefur þrjár einingar og er kenndur í sex kennslustundir á viku (240. mín).
1.1.4 Námsáætlanir, val Nemendur velja sér sjálfir áfanga á hverri önn og bera þannig ábyrgð á skipulagi náms síns. Þó velur skólinn áfanga fyrir nemendur á fyrstu önn þeirra í námi. Í byrjun náms gera nemendur áætlun um nám sitt til loka. Í skólanum er á hverri önn svokallaður valdagur og ganga nemendur þá frá vali á námsáföngum fyrir næstu önn. Skrá yfir áfanga í boði er gefin út fyrir hverja önn og verða áætlanir og val nemenda að taka mið af henni. Auk þess verður nemandinn að gæta þess að brjóta ekki reglur um undanfara og tímafjölda á viku. Framboð námsáfanga tekur m.a. mið af nemendafjölda á brautum og fjárveitingum til kennslu. Sjá nánar í grein 1.3.1. og gr. 1.3.5.5.
1.1.5 Kennsluáætlanir Við upphaf kennslu skulu nemendur fá skriflegar upplýsingar frá kennara um námsmarkmið viðkomandi námsáfanga, lista yfir námsgögn og kennsluáætlun. Við upphaf áfangans skal kynna nemendum tilhögun námsmats og reglur um framkvæmd þess. Hið sama á við um vægi verklegra þátta, ritgerða, munnlegs prófs og annarra námsmatsþátta í lokaeinkunn. Kennsluáætlanir eru aðgengilegar nemendum inn á kennsluvefnum Moodle á heimasíðu skólans www.fnv.is.
1.1.6 Námsbrautir Námsbrautir er það samval áfanga sem nemendum stendur til boða í skólanum. Nemendur brautskrást eftir að hafa lokið tiltekinni námsbraut. Í brautalýsingum eru tilteknir þeir möguleikar sem nemendur eiga á því að velja saman námsáfanga. Ýmsir námsáfangar eru sameiginlegir mörgum námsbrautum og í þeim er nemendum raðað saman í kennsluhópa án tillits til þess á hvaða braut þeir eru skráðir. Auðvelt er að skipta um braut eftir fyrstu námsannirnar án þess að það kosti tímatap eða önnur óþægindi þar sem flestir námsbrautir eiga sameiginlegar kjarnagreinar. Til að ljúka námi af námsbraut þarf nemandi annars vegar að ljúka tilskildum einingafjölda í heild en hins vegar að ljúka tilteknum áföngum eða tilteknum einingafjölda í einstökum námsgreinum eða námsgreinaflokkum. Námsbrautum til stúdentsprófs er skipt í kjarna, sem samanstendur af 98 námseiningum, kjörsvið sem samanstendur af 30 námeiningum í kjörsviðsgreinum viðkomandi námsbrautar og 12 einingum í óbundnu vali. Nemendur geta lokið námi á fleiri en einni braut með því að bæta við sig tilskildum einingum. Það er gert m.a. með því að nota kjarna- eða kjörsviðsáfanga einnar brautar sem val á annarri.
1.1.7 Námstími Í brautalýsingum er gefinn upp meðalnámstími til að ljúka einstökum brautum en í reynd getur námstíminn orðið talsvert breytilegur, bæði skemmri og lengri en meðalnámstími. Nemendur geta að nokkru ráðið námshraða sínum sjálfir með því að stunda á hverri önn fleiri eða færri áfanga en gert er að jafnaði. Misjafn undirbúningur nemenda í upphafi getur haft áhrif á það hve fljótt þeim miðar áfram í náminu.
1.1.8 Kennslustundir Í skólanámskrá þessari er miðað við að hver kennslustund sé 40 mínútur. Venjulega er tímalengd 3 eininga áfanga 240 mín. (6 X 40 mín) í hverri viku.
1.1.9 Stundatöflur nemenda Í áfangakerfinu eru búnar til stundatöflur fyrir hvern nemanda. Gefinn er ákveðinn frestur til töflubreytinga í upphafi hvorrar annar og er tilhögun þess auglýst sérstaklega.
1.1.10 Undanfarar Við val á námsáföngum þurfa nemendur að gæta þess að undanfarareglum sé fylgt. Ekki er heimilt að hefja nám í áfanga án þess að hafa lokið tilgreindum undanfara.
1.2 Inntökureglur
1.2.1 Grunnskólanám Rétt til inngöngu í skólann eiga allir sem hafa lokið námi í grunnskóla eða hlotið aðra jafngilda menntun. Nemendur á Norðurlandi vestra njóta forgangs við innritun í skólann og á heimavist.
1.2.2 Átján ára og eldri Umsækjandi sem orðinn er 18 ára getur hafið nám í skólanum þótt hann hafi ekki lokið grunnskóla eða sambærilegu námi.
1.2.3 Einkunn á grunnskólaprófi Nemendur, sem lokið hafa skyldunámi í samræmi við ákvæði aðalnámskrár grunnskóla, geta innritast á brautir framhaldsskóla, svo fremi að ekki séu gerðar viðbótarkröfur.
1.2.4 Nám á bóknámsbrautum Til að hefja nám á bóknámsbrautum framhaldsskóla þurfa nemendur að þreyta a.m.k. fjögur samræmd próf, þ.e. í íslensku og stærðfræði og tvö próf til viðbótar. 1. Til að hefja nám á málabraut skulu nemendur hafa þreytt samræmt lokapróf í íslensku, dönsku, ensku og stærðfræði. Meðaltal einkunnar á samræmdu lokaprófi og skólaeinkunnar í við lok grunnskóla í íslensku, dönsku og ensku skal vera 6,0 að lágmarki í hverri grein og auk þess verður einkunn á samræmdu lokaprófi að vera 5,0 eða hærri í hverri þessara greina. Um lágmarksárangur í stærðfræði gilda ákvæði 1. málsgreinar. b) Til að hefja nám á félagsfræðabraut skulu nemendur hafa þreytt samræmt lokapróf í íslensku, ensku, samfélagsgreinum og stærðfræði. Meðaltal einkunnar á samræmdu lokaprófi og skólaeinkunnar í við lok grunnskóla í íslensku, ensku og samfélagsgreinum skal vera 6,0 að lágmarki í hverri grein og auk þess verður einkunn á samræmdu lokaprófi að vera 5,0 eða hærri í hverri þessara greina. Um lágmarksárangur í stærðfræði gilda ákvæði 1. málsgreinar. 2. Til að hefja nám á náttúrufræðabraut skulu nemendur hafa þreytt samræmt lokapróf í íslensku, ensku, stærðfræði og náttúrufræði. Meðaltal einkunnar á samræmdu lokaprófi og skólaeinkunnar í við lok grunnskóla í íslensku, ensku og stærðfræði skal vera 6,0 að lágmarki í hverri grein og auk þess verður einkunn á samræmdu lokaprófi að vera 5,0 eða hærri í hverri þessara greina. Um lágmarksárangur í ensku gilda ákvæði 1. málsgreinar. 3. Almenn námsbraut er opin öllum nemendum. Þeir sem ekki uppfylla ofangreind skilyrði til inntöku á einstakar námsbrautir eiga kost á að hefja nám á almennri námsbraut eða í sérdeildum.
1.2.5 Nám á starfsnámsbrautum Nemandi sem innritast á starfsnámsbrautir skal hafa tekið samræmt próf í íslensku og stærðfræði. Meðaltal einkunnar á samræmdu lokaprófi og skólaeinkunnar í áðurnefndum greinum skal vera að lágmarki 5,0. Auk þess má einkunn á samræmdu prófi ekki vera lægri en 4,5 í hvorri þessara námsgreina. Skólameistara er heimilt að setja viðbótarskilyrði til inngöngu á starfsnámsbrautir sem skulu miðast við frammistöðu nemenda í verk- og listgreinum í grunnskóla.
1.2.6 Nám á starfsbraut Brautarstjóri starfsbrautar veitir upplýsingar um inntökureglur í síma 455-8000.
1.2.7 Námshraði í byrjunaráföngum Í sumum byrjunaráföngum er gerð krafa um tiltekna lágmarkseinkunn á grunnskólaprófi í sömu grein (sjá áfangalýsingar). Í fjórum námsgreinum, íslensku, dönsku, ensku og stærðfræði er um tvenns konar námshraða að ræða í byrjunaráföngum. Áfangarnir eru ýmist kenndir í 4 eða 6 kennslustundir á viku en fyrir þá fást ýmist 3 eða 2 námseiningar sbr. þó lið c um námeiningar í áföngum 002. Um þetta gilda eftirfarandi reglur: 1. Til að hefja nám í þriggja eininga áfanga í einhverri þessara námsgreina (áfanga 103) þarf nemandinn að hafa fengið a.m.k. 8,0 í lokaeinkunn í greininni á grunnskólaprófi. Tekið er meðaltal af einkunn á samræmdu prófi og skólaeinkunn án upphækkunar. Einkunn á samræmdu lokaprófi má þó ekki vera lægri en 7,5. 2. Til að hefja nám í tveggja eininga áfanga (áfanga 102) þarf nemandinn að hafa fengið a.m.k. 5,0 í lokaeinkunn í sömu grein (meðaltalseinkunn, sjá a-lið). Þó má einkunn á samræmdu prófi ekki vera lægri en 4,5. 3. Hafi einkunn nemanda í kjarnagreinum verið lægri en 5,0 (meðaltalseinkunn, sjá a-lið) og einkunn á samræmdu lokaprófi verið lægri en 4,5, þarf hann að hefja námið með áfanga 193 í greininni. Sá áfangi gefur námseiningar sem hægt er að nota í óbundnu vali eða sem viðbótareiningar á viðkomandi námsbraut. Í öðrum greinum má nemandinn hefja nám er gefur fullgildar einingar.
1.2.8 Mat á námi úr öðrum skólum, stöðupróf Hafi nemandi stundað nám í öðrum framhaldsskólum fær hann nám sitt þar metið sem hluta af námi sínu í viðtökuskólanum. Námið er metið eftir ákveðnum reglum og er leitast við að nemendur hvorki tapi né hagnist á flutningnum. Heimilt er að meta þekkingu eða færni sem aflað hefur verið á annan hátt en með formlegri skólagöngu, svo sem á námskeiðum hjá fræðsluaðilum er starfa á eigin vegum, eða með reynslu sem aflað er við störf á vinnumarkaði. Við matið skal ekki leita eftir því að fyrra nám sé nákvæmlega það sama og skilgreint er í námskrá heldur skal leggja áherslu á að athuga hvort ekki sé hægt að meta námið sem jafngilt og hvort nemandinn hafi forsendur til að ljúka náminu.
1.3 Námskröfur - réttur nemenda
1.3.1 Kennslustundafjöldi á viku Til að teljast í fullu reglulegu námi skal nemandi sækja a.m.k. 35 kennslustundir á viku. Í verklegu námi eru þær oft fleiri.
1.3.2 Námsmat, prófkröfur og einkunnir Námsmat er fólgið í sérstöku prófi og/eða öðru viðurkenndu námsmati nemenda á önninni skv. kennsluáætlun. Einkunnir eru gefnar í heilum tölum frá 1 til 10. Einkunnin 0 táknar að nemandi hafi ekki undirgengist námsmat. Einkunnin 1 táknar að 0 - 14% námsmarkmiða sé náð " 2 15 - 24% " " 3 25 - 34% " " 4 35 - 44% " " 5 45 - 54% " " 6 55 - 64% " " 7 65 - 74% " " 8 75 - 84% " " 9 85 - 94% " " 10 95 - 100% " Til að standast próf í áfanga og fá leyfi til að hefja nám í eftirfarandi áfanga þarf lágmarkseinkunn 5. Þó er heimilt að brautskrá nemanda með einkunnina 4 ef um lokaáfanga eða stakan áfanga er að ræða. Þessir áfangar gefa ekki námseiningar. Vægi verkefna í lokaeinkunn áfanga er mismunandi og er tilgreint í kennsluáætlun. Falli nemandi á prófi í lok annar er hann fallinn í áfanganum, einkunnir fyrir verkefni á önninni geta ekki hækkað lokaeinkunn hans upp fyrir 4.
1.3.3 Prófsýning og réttur nemenda Að loknu prófi skulu nemendur eiga þess kost að skoða prófúrlausnir sínar í viðurvist kennara í síðasta lagi innan árs frá afhendingu einkunna. Ef nemandi telur einkunnagjöf kennara ósanngjarna á hann rétt á að vísa málinu til skólameistara. Skólameistari hlutast þá til um, að höfðu samráði við fag- eða brautarstjóra, að hlutlaus prófdómari meti úrlausn nemandans. Úrskurður prófdómara skal gilda.
1.3.4 Endurtektarpróf Ef fall í einum eða tveimur áföngum á lokaönn kemur í veg fyrir að nemandi geti brautskráðst skal leyfa honum að taka upp próf í þeim áfanga í lok sömu annar.
1.3.5 P- og U-nám 1. Hægt er að leyfa nemendum að hraða námi sínu með því að skrá þá til náms í einstökum áföngum án tímasóknar og kallast þeir áfangar P -áfangar. Nemandi í dagskóla, sem hyggst taka fleiri en 25 námseiningar á önn og kemur þeim ekki öllum fyrir í stundatöflu, þarf að sækja sérstaklega um undanþágu til skólameistara til að stunda P-nám í þeim einingum sem út af standa. Sérstök athygli skal vakin á því að sumir áfangar eru þess eðlis að ekki er unnt að leggja stund á þá án tímasóknar.
2. P-nemendur skulu hafa samband við kennara í upphafi annar og standa skil á verkefnum á sama tíma og aðrir nemendur. Verði misbrestur á þessu fær nemandinn ekki að taka próf í áfanganum.
3. Nemandi, sem hyggst brautskrást frá FNV innan tveggja anna skv. skilgreindri námsbraut og á ekki kost á að stunda nám í áfanga sem er nauðsynlegur vegna námsloka, á kost á P-námi við FNV eða fjarnámi við annan skóla án endurgjalds. Þetta er háð því að námsframvinda nemandans hafi verið án óeðlilegra frávika og rétt hafi verið staðið að vali áfanga skv. námskrá skólans. Nemandi ber sjálfur ábyrgð á námsvali sínu þ.á.m. vali á áföngum með tilliti til þess hvort þeir eru kenndir á haustönn eða vorönn.
4. Bjóðist nemanda skv. 3. gr. að stunda nám í einhverjum áfanga við FNV, annað hvort í dagskóla eða í P-námi, en kýs að stunda fjarnám utan skólans, þá skal hann standa sjálfur straum af þeim kostnaði sem af því hlýst.
5. Skólameistari getur veitt nemanda, sem ekki er skráður í dagskóla, heimild til að stunda nám sitt utan skóla (U-nám). Umsóknir um utanskólanám skulu berast skólanum á sama tíma og aðrar umsóknir um skólavist. Um utanskólanemendur gilda sömu reglur og um aðra nemendur skólans. Utanskólanemendur fá ákveðin fyrirmæli frá skólanum um skil á verkefnum, skýrslum og ritgerðum og annað sem lýtur að náminu. Utanskólanemendum er ekki heimilt að sækja kennslustundir nema í samráði við kennara eða skólayfirvöld. Sérstök athygli skal vakin á því að sumir áfangar eru þess eðlis að ekki er unnt að leggja stund á þá utanskóla. Utanskólanemendur eiga að hafa samband við kennara áður en mánuður er liðinn frá byrjun annar annars fyrirgera þeir rétti sínum til próftöku. Greidd er ákveðin upphæð fyrir hverja námseiningu í utanskólanámi skv. gjaldskrá skólans.
6. Nemandi í dagskóla sem kemur áfanga fyrir í stundatöflu, en kýs að sækja ekki kennslustundir, skal skráður sem U-nemi í áfanganum og greiða fyrir hann skv. gjaldskrá fjarnáms.
7. Skólameistara er heimilt að veita undanþágu frá þessum reglum.
1.3.6 Frjáls mæting (FM) Skólameistara er heimilt að veita nemanda undanþágu frá ákvæðum skólasóknarreglna. Þetta á t.d. við þegar árekstrar verða á milli áfanga í stundatöflu nemanda eða af öðrum ástæðum sem skólameistari metur gildar.
1.3.7 V-áfangi Í nokkrum námsgreinum er boðið upp á einstaklingsbundið nám í svokölluðum V-áföngum (verkefnaáföngum). Nemandi stundar þá sjálfstætt nám samkvæmt tiltekinni áfangalýsingu en nýtur ekki kennslu í venjulegum skilningi. Hann vinnur umfangsmikil verkefni undir handleiðslu kennara án þess að sækja kennslustundir. Nemendur eru því ekki í námshópi. Í upphafi annar fær nemandi tilnefndan kennara sem leiðbeinir honum. Hver skóli getur sett nánari reglur um framkvæmd V-áfanga.
1.3.8 Undanþága frá fjarvistaskráningu Fjarvistir afreksíþróttafólks, sbr. skilgreiningu Aðalnámskrár framhaldsskóla, vegna keppnis- og/eða æfingaferða skulu ekki færðar í fjarvistabókhald skólans enda hafi viðkomandi sérsamband eða þjálfari lagt fram staðfesta áætlun um þátttöku íþróttamannsins í íþróttaverkefnum fyrir upphaf annar. Sé óskað samskonar heimildar vegna annars íþróttafólks skal lögð fram umsókn frá viðkomandi íþróttafélagi eða þjálfara fyrirfram.
1.3.9 Undanþága frá íþróttum Nemandi, sem stundar umfangsmikla líkamsþjálfun á vegum sérsambands og/eða íþróttafélags, undir stjórn sérmenntaðs þjálfara, íþróttafræðings eða kennara samhliða námi í framhaldsskóla, getur óskað eftir því að vera undanþeginn vissum áföngum eða áfangahlutum í íþróttum, líkams- og heilsurækt.
1.4 Flokkun námsbrauta
1.4.1 Almennt nám Almenn námsbraut er ætluð þeim nemendum sem ekki uppfylla kröfur um skráningu á aðrar námsbrautir og þeim sem ekki hafa gert upp hug sinn um hvert þeir vilja stefna í námi sínu.
1.4.2 Stúdentsbrautir Stúdentsbrautir veita almenna menntun og búa nemendur undir nám á háskólastigi. Meðalnámstími er 8 annir. FÉ Félagsfræðibraut. Áhersla er á samfélagsgreinar, m.a. sögu. Velja má á milli fjögurra kjörsviða; félagsfræði (FÉ-fél), sálfræði (FÉ-sál), hagfræði (FÉ-hag) og íþróttir (FÉ-íþr) MB Málabraut. (MB) Áhersla er á tungumál. NÁ Náttúrufræðibraut. Áhersla er á stærðfræði, efnafræði og líffræði. Velja má á milli þriggja kjörsviða; náttúrufræði (NÁ-nát), eðlisfræði (NÁ-eðl) og íþróttir (NÁ-íþr). VH Viðskipta- og hagfræðibraut. Áhersla er lögð á viðskipta- og hagfræðigreinar.
1.4.3 Iðn- og verknámsbrautir Skólinn býður upp á nám í rafiðnum, tréiðnum og á málmiðnum. Grunndeildir: Námið tekur tvær til fjórar annir og veitir almenna undirstöðu í greinunum og veitir aðgang að framhaldsdeildum. Grunndeildir við eru eftirfarandi: GR Grunndeild rafiðna GBM Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina MG Málmiðngreinar, fyrri hluti Iðnbrautir: Námsbrautir eru eftirfarandi: HÚ8 Húsasmíði, verknámsbraut RK9 Rafvirkjun RS9 Rennismíði VS9 Vélsmíði VV1 Vélstjórnarbraut 1. stig VV2 Vélstjórnarbraut 2. stig
4.4 Starfsnámsbrautir Þær veita undirbúning undir frekara nám í ýmsum sérskólum eða undir störf á almennum vinnumarkaði. Námstími er mismunandi, 1 -6 annir. ÍÞ Íþróttabraut. Undirbúningur undir störf á vettvangi félags- og íþróttamála. Meðalnámstími er 4 annir. MN Meistaranámsbraut. Brautin er ætluð þeim sem lokið hafa sveinsprófi og vilja afla sér meistararéttinda í sinni iðngrein. Námið er 53-72 einingar, mismunandi eftir iðngreinum. Sameiginlegur kjarni er 22 einingar. SJ Sjúkraliðabraut. Brautinni er ætlað að búa nemendur undir sjúkraliðastörf. Meðalnámstími er 6 annir. UP Uppeldisbraut. Undirbúningur undir nám og störf á vettvangi félags- og uppeldismála. Meðalnámstími er 4 annir. VI Viðskiptabraut. Undirbúningur undir almenn verslunar- og skrifstofustörf. Meðalnámstími er 4 annir. ÞS Skrifstofubraut. Undirbúningur undir almenn skrifstofustörf. Meðalnámstími er 4 annir. SK30 Skipstjórnarnám til 30. tonna réttinda.
1.4.5 Starfsbraut Starfsbraut er ætlað að búa nemendur undir aukna þátttöku í þjóðfélaginu á eigin forsendum. Leitað er leiða til að finna styrkleika og áhugasvið hvers og eins með það að markmiði að styðja viðkomandi til aukins þroska, frekara náms og starfsþjálfunar. Starfsþjálfunin fer að mestu leyti fram á vinnustað. Þetta nám gefur ekki starfsréttindi, hins vegar býr það nemanda undir þátttöku á vinnumarkaði og auðveldar honum að fá launaða vinnu við hæfi að námi loknu. Þetta eykur sjálfstraust, sjálfstæði og lífsgleði nemanda og hvetur hann og styður í viðfangsefnum sínum á heimili, í vinnu og í tómstundum. Námið er einkum ætlað nemendum, sem hafa notið verulegrar námsaðstoðar í grunnskóla, verið í sérdeild eða sérskóla og taldir af viðurkenndum greiningaraðilum víkja svo frá almennum þroska að þeir hafa fengið námsmat samkvæmt 48. gr. grunnskólalaga nr. 66/1995 og undanþágu frá ákveðnum skyldunámsgreinum. Námstími er 2 til 4 ár. Nemendur geta einnig innritast í aðra áfanga á almennum brautum og fer það eftir óskum og færni hvers nemanda. Til baka |