FNV | 05. janúar 2010 - kl. 14:56 Nemandi við FNV vinnur til verðlauna Valgerður Hjaltalín fær viðurkenningu í hugmyndsamkeppni Faxaflóahafna
Athöfnin fór fram í Víkinni, Sjóminjasafninu á Grandagarði. Keppnin var í tveimur hlutum, A-hluta sem var ætlaður fagaðilum og í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og B-hluta sem var opinn öllum. Markmið samkeppninnar var að fá fram frjóar og fjölbreyttar hugmyndir um framtíðarnýtingu og framtíðarskipulag Gömlu hafnarinnar. Í dómnefnd sátu sjö manns, þar af þrír frá Arkitektafélaginu, en Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi var formaður dómnefndar. Heildarfjárhæð verðlauna voru 14 m.kr. og þar af runnu 2 m.kr. í B-hluta.
Valgerður tók þátt í námskeiði Myndlistaskóla Reykjavíkur í ágúst 2009, en námskeiðið hét Myndlist og arkitektúr og kennarar voru bæði myndlistarmenn og arkitektar. Viðfangsefni nemenda var hugsað út frá samkeppni Faxaflóahafna og voru hugmyndirnar sendar í keppnina. Ein af þeim var hugmynd Völu. Alls bárust 39 tillögur í B-hlutann, þar af fengu 8 tillögur verðlaun. Tillaga Völu var um gerð leikvallar á Granda og í umsögn dómnefndar segir að framsetning sé frjálsleg en skýr. Verðlaunin sem hún fékk voru 200.000 krónur.
Skólinn óskar Valgerði innilega til hamingju með viðurkenninguna.