Björgvin Tómasson, orgelsmiður, fékk var útnefndur iðnaðarmaður ársins, en fyrir þá útnefningu fékk hann einu gullverðlaunin sem veitt voru á hátíðinni. Nýnemar fengu hins vegar silfur- og bronsverðlaun. Þess má geta að um 650 nýsveinar þreyttu sveinspróf árið 2009.
Þrír nemendur frá FNV fengu viðurkenningar. Árni Páll Gíslason, rafvirki, fékk silfurverðlaun, en iðnmeistari hans er Haraldur Jón Arason. Sigurbjörn Vopni Björnsson, húsasmiður, fékk bronsverðlaun, en iðnmeistari hans er Björn Friðrik Svavarsson. Þá fékk Kristján Ásgeirsson Blöndal, húsasmiður bronsverðlaun, en iðnmeistari hans er Hilmar Kristjánsson. Alls fengu fjórir húsamiðir viðurkenningu. Þess skal getið að Kristján stundaði fyrri hluta námsins við FNV og lauk því við VMA.
Þeir Árni Páll og Kristján fengu að auki viðurkenningu frá Háskólanum í Reykjavík þar sem þeir fá niðurfelld skólagjöld á fyrstu námsönn við skólann.
Aðrir verðlaunahafar komu frá Tækniskólanum (8), Iðnskólanum í Hafnarfirði (2), Menntaskólanum í Kópavogi (1), Fjöltækniskólanum (1), Fjölbrautskóla Vesturlands (1), Fjölbrautaskólanum í Breiðholti (1) og Snyrtiskóla Reykjavíkur (1).
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem nemendur frá FNV fá viðurkenningar á þessum vettvangi og öðrum fyrir framúrskarandi árangur. Skólinn óskar þessum nemendum innilega til hamingju með þessar viðurkenningar sem bera vott um það góða starf sem unnið er við skólann.