FNV | 24. febrúar 2010 - kl. 14:35 Hildur Sólmundsdóttir kom sá og sigraði
Hin árlega undankeppni Söngkeppni framhaldsskólanna var haldin í FNV í síðustu viku. Tónlistarklúbbur FNV sá um keppnina og stóð hann sig með mestu prýði en gaman er að geta þess undirleikur var nú alfarið í höndum nemenda skólans.
Hildur Sólmundsdóttir bar sigur úr býtum með lagið Að eilífu, ávallt, en hún samdi textann sjálf við gamlan hittara Kelly Clarkson, Anytime. Hún fer fyrir hönd skólans í lokakeppnina sem haldin verður á Akureyri 10. apríl. Í öðru sæti var Sara Rut Fannarsdóttir sem flutti lagið Tár í tómið. Þriðja sætið hreppti Edda Borg Stefánsdóttir en hún tók lagið Proud Mary með tilþrifum. Aukaverðlaun voru veitt í ár að undirlagi Sorins Lazar, eins dómaranna, og féllu þau í hlut Ásþórs Óðins Egilssonar sem söng lagið Hef ég heyrt þetta áður sem Stuðmenn gerðu þekkt á sínum tíma. Lag Ásþórs verður tekið upp í boði Sorins Lazar við undirleik húsbandsins.
Nemendafélag FNV þakkar öllum velunnurum keppninnar fyrir veglega vinninga.