FNV | 03. mars 2010 - kl. 16:37 Nóg að gera í Tréiðnadeild
Nemendur eru mjög áhugasamir og miðar verkunum það vel að þörf var á aukaverkefni. Fyrir valinu varð hönnun og smíði á snúnum stiga sem á að fara í nýuppgert hús að Aðalgötu 11 á Blönduósi í samstarfi við Verkfræðistofuna Stoð h/f . Það var stefnt á að gera byggingar fokheldar og tilbúnar að utan fyrir áramór og tókst það með miklum sóma.
Nú stendur yfir vinna innandyra í húsunum þ.a.s. sumarhúsinu, hitaveituhúsinu og fuglaskoðunarhúsinu og miðar vel, en stefnt er að því að þau verði fullkláruð á vordögum. Verkstæðisvinna er nokkuð mikil og nú stendur yfir smíði á innréttingu, gluggum, útihurðum og stiga.