FNV hélt íþróttamót í samstarfi við KSÍ hér á Sauðárkróki föstudaginn 19. febrúar. Til leiks mættu tvö kvennalið og þrjú karlalið úr skólum á Norðurlandi og öttu þau kappi í spennandi viðureign og skemmtu áhorfendur sér konunglega.
Í kvennariðli kepptu Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra og Menntaskólinn á Akureyri og unnu okkar stelpur eftir frekar jafnan leik. Í karlariðli kepptu Laugar, Menntaskólinn á Akureyri og Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra og Laugar unnu þann riðil. Því eru það kvennalið FNV og karlalið Lauga sem fara frá Norðurlandi á aðalmótið sem haldið verður í Reykjavík nú síðar í vetur.