FNV | 08. mars 2010 - kl. 15:12 Opnir dagar 11. og 12. mars Viðburðir og dagskrá
Opnir dagar verða haldnir í FNV fimmtudaginn 11.3. og föstudaginn 12.3. Nemendafélag skólans stendur fyrir fjölbreyttri dagskrá báða dagana sem lýkur með veglegri árshátíð að kvöldi föstudags.
Námskeið / afþreying sem í boði verður:
Art-therapy námskeið Jurate frá Nes listamiðstöðinni kennur okkur hvernig á að slaka á með list. Nemendur þurfa að koma með sína eigin pensla og málningu. Staðsetning: Stofa 203
Árshátíðarnefnd Sér um undirbúning fyrir okkar glæsilegu árshátíð. Mjög gaman og gefandi. Staðsetning: Skrifstofa nemó
Bíó Kvikmyndin Book of Eli sýnd og meðlimir NFNV fá bíómiðann á Opnu daga tilboði sem er 800.- kr. Staðsetning: Króksbíó, Bifröst Verð: 800.- kr
Dansnámskeið Anna frá Nes listamiðstöðinni kennur okkur margvíslega skemmtilega dansa. Allt frá nútímadansi í kántrýdans. Staðsetning: Stofa 304
FIFA mót Hver er bestur í FIFA? Staðsetning: Svítan á vistinni
Fyrirlestur um seinni heimstyrjöldina Jóhann Frímann er með fyrirlestur um seinni heimstyrjöldina. Staðsetning: Fyrirlestrarsalur
Förðunarnámskeið Obba frá snyrtistofunni Wanitu kemur og kennir okkur aðalatriðin. Stelpur þetta er gullið tækifæri fyrir árshátíðina! Staðsetning: 303
Guitar-Hero mót Hver er bestur í Guitar-Hero? Staðsetning: Hús Frítímans
Hiphop dansnámskeið Raggý er með kennslu í hiphop dansi. Staðsetning: 305
Júdó Kalli Lúðvíks verður með júdókennslu fyrir áhugasama. Staðsetning: 304
Kennaraáskorun Nemendur skora á kennara í skák, póker og spurningakeppni. 1 nemanda þarf í skák, 3 í póker og 3 í spurningakeppnina. Nemendur er svo hvattir til að mæta og hvetja sitt lið – mæting er tekin fyrir þá sem mæta til að horfa á líka. Ef nemendur velja að keppa í þessum greinum þarf að velja eitthvað annað til vera ef nemandinn kemst ekki í þetta. Staðsetning: 203
LAN Allir tölvuunnendur mæta á svæðið og lana saman. Gæta þarf fyllsta hreinlætis. Staðsetning: Stofa 307
Ljósmyndamaraþon Nemendur fá 10 þemu sem þau eiga að reyna að túlka sem best í mynd. Unnið er í hópum og hámark er 7 manns í hverjum hóp. Ekki má sjást í nein vímuefni né sígarettur á myndunum og ekki er leyfilegt að nota photoshop. Staðsetning: Mæting inn á nemó kl 09:00 áður en lagt er af stað
Ljósmyndanámskeið Ellie og Katie frá Nes listamiðstöðinni kenna okkur grunninn í ljósmyndun. Nemendur mega koma með eigin myndavélar ef þeir vilja. Staðsetning: Stofa 205
Motor Cross Allir þeir sem stunda Motor Cross geta skráð sig í þennan hóp og fá þá að hjóla að vild. Nemendur verða að vera á sínum eigin hjólum. Staðsetning: Niðri á söndum
Myndlistarnámskeið Mary frá Nes listamiðstöðinni kemur og kennur og grunntökin í myndlist. Nemendur þurfa að koma með sína eigin pensla og málningu. Staðsetning: Stofa 202
Píla Píluspjald á staðnum og skipt verður upp í lið sem keppa til sigurs. Staðsetning: Stofa 306
Reiðnámskeið Nemendur mæta og skella sér í reiðtúr með Ingimari Pálssyni. Aðeins komast 14 nemendur í hvern hóp þannig að ef þið veljið þetta þá þarf að velja eitthvað annað í varaval ef þið komist ekki í þetta. Staðsetning: Hesthús Ingimars í Hesthúsahverfinu Gjald: 1.500 kr.-
Samkvæmisdansnámskeið Aleksandra er með kennslu í samkvæmisdansi. Staðsetning: Stofa 305
Skartgripagerð Herdís í Kompunni kennir okkur að búa til okkar eigin skartgripi. Hálsmen og eyrnalokkar úr hraunmolum og swarovski kristöllum. Sýnishorn er inn á nemó. Þeir sem skrá sig í þetta báða dagana fá að gera eitthvað öðruvísi seinni daginn. 20 manna takmark er á námskeiðið þannig að ef þú velur þetta þarftu að velja eitthvað annað í varaval ef þú kemst ekki í þetta. Staðsetning: Stofa 201 Efniskostnaður: 1.500 kr.-
Skíðahópur Hópurinn skellir sér saman á skíði kl 10:00. Nemendur þurfa að koma sér sjálfir upp á skíðasvæði og vera með eigin skíði/bretti, annars er hægt að leigja útbúnað uppi í skíðalyftu á kostnað nemenda. Nemdur borga lyftukostnað sjálfir en sérstakt tilboð er þennan dag þannig að nemendur borga barnagjald. Þeir sem eru í útivistarhópnum og komust ekki seinast á skíði fá mætingu ef þeir fara í skíðahópinn. Árni Stefánsson tekur mætingu kl 10:00. Skíðahópurinn fær svo frítt í sund eftir skíði kl 17:00 – 18:00. Staðsetning: Skíðasvæði Tindastóls
Skotvopnanámskeið Nemendur mæta upp á svæði Skotfélagsins Ósmanns á Reykjaströnd og fá kynningu á skotvopnum og fá svo að spreyta sig á skotvopnum og boga. Nemendur undir 18 ára aldri þurfa að skila leyfisbréfi frá foreldrum inn á nemó. Leyfisbréfið er hægt að nálgast inn á skrifstofu nemó. Staðsetning: Skotsvæði Skotfélagsins Ósmanns á Reykjaströnd Verð: 1.500.- kr
Skúlptúrnámskeið Margarethe frá Nes listamiðstöðinni kennir okkur grunnatriðin í skúlptúr. Staðsetning: Stofa 305
Slysaæfing Slys verður sviðsett og nemendum kennt hvernig á að bera sig við þegar komið er að slysi. Leiðbeinandi er Kalli Lúðvíks. Staðsetning: Stofa 304
Spilahópur Spilað er ýmsileg skemmtileg spil. Borðspil og handspil vera á staðnum og fólk spilar að vild. Staðsetning: Stofa 202
Stjórnmálaumræður Félag ungra Framsóknarmanna og Félag ungra Sjálstæðismanna mæta á svæðið og ræða stjórnmál. Hörku rökræður verða í gangi og eru allir velkomnir. Félag ungra Framsóknarmanna bjóða upp á kaffi og kex. Staðsetning: Stofa 204
Stuttmyndahópur Gerir stuttmynd/video sem verður svo sýnt á Árshátíðinni. Nemendur fá mætingu þegar þeir skila inn myndbandinu á föstudeginum til að sýna á Árshátíðinni.
Sundleikfimi Heiða Reynis verður með skemmtileg og holla sundleikfimi. Staðsetning: Sundlaug Sauðárkóks
Ungversk tónlistarsmiðja Krisztian kynnir fyrir okkur ungverska tónlist. Áhugaverð og skrýtin tónlist fyrir forvitið fólk. Staðsetning: Stofa 203
Útvarpshópur nemenda Nemendur fá að vera með útvarpsþætti sem útvarpað verður í skólaútvarpinu. Staðsetning: Skrifstofa Nemó
Youth in action fyrirlestur Fyrirlestur frá manneskju sem kynnir fyrir okkur Evrópu unga fólksins og Youth in action sem eru samtök sem sendir ungt fólk ókeypis til annarra Evrópulanda í sjálfboðaliðastarf. Staðsetning: Fyrirlestrarsalur á 1. Hæð í Bóknámshúsi
Dagskráin er eftirfarandi:
| Tími |
Miðvikudagurinn 10.mars |
Fimmtudagurinn 11.mars |
Föstudagurinn 12.mars |
| Fyrir hádegi |
Þemadagur |
09:00-12:00 |
Skartgripagerð |
|
09:00-12:00 |
Skartgripagerð |
| 09:00-12:00 |
Stjórnmálaumræður |
09:00-10:30 |
Ungversk tónlistarsmiðja |
| 10:00-12:30 |
Guitar-Hero mót |
09:00-12:00 |
Stjórnmálaumræður |
| 10:00-12:00 |
Reiðnámskeið |
|
09:00-12:00 |
Slysaæfing |
| 09:00-09:50 |
Sundleikfimi |
|
10:00-12:00 |
Reiðnámskeið |
| 09:00-12:00 |
Myndlistarnámskeið |
09:00-11:00 |
Píla |
|
|
| 09:00-12:00 |
Ljósmyndanámskeið |
|
|
|
|
| 09:00-12:00 |
Dansnámskeið |
|
|
|
|
|
| |
|
|
|
|
|
|
|
| Allur dagurinn |
Skíðahópur |
|
Allur dagurinn |
Kennaraútvarp |
|
| Eftir hádegi |
Þemadagur |
Útvarpshópur nemenda |
Spilahópur |
|
| Ljósmyndamaraþon |
|
|
|
|
| 13:00-15:00 |
FIFA mót |
|
|
13:00-? |
Kennaraáskorun |
|
| 13:00-15:00 |
Youth in action fyrirlestur |
13:00-15:00 |
Júdó |
|
|
| 13:00-14:30 |
Förðunarnámskeið |
|
13:30-15:30 |
Skotvopnanámskeið |
| 13:00-16:00 |
Art therapy námskeið |
13:00-15:00 |
Samkvæmisdansnámskeið |
| 13:00-16:00 |
Skúlptúrnámskeið |
|
13:00-15:00 |
Fyrirlestur um seinni heimstyrjöldina |
| 14:30-16:30 |
Hiphop dansnámskeið |
|
|
|
|
| 17:00-18:00 |
Sund fyrir skíðahópinn |
|
|
|
|
| |
|
|
|
|
|
|
|
| |
|
|
|
|
|
|
|
| Kvöld |
20:00-? |
Tónleikar tónlistarklúbbs |
20:00 -22:30 |
Bíó - Book of Eli |
Árshátíð :) |
| Báða dagana, allan daginn - Lan, Motor Cross, Árshátíðarnefnd, Stuttmyndahópur Nemendur þurfa að skrá sig í a.m.k. eina afþreyingu fyrir hádegi og eina eftir hádegi á fimmtudeginum og föstudeginum |
|
th Til baka |