Miðvikudaginn 10. Mars ætlum við í Tónlistarklúbb fjölbrautaskólans að halda tónleika á sal skólans. Tónleikarnir verða með huggulega ívafi eins og okkur er einum lagið Það verður heitt á könnunni og léttar veitingar með því.
Hljómsveitin Fúsaleg Helgi verður á staðnum og tekur lagið.
Aðgangseyrir verður 1000 krónur og mun ágóðinn renna til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Einnig skorum við á fyrirtæki í Skagafirði að leggja málefninu lið í tilefni tónleikanna.
Hægt er að leggja inn á reikning tónlistarklúbbsins: 1125-05-250011, kt: 3007913289. Nánari upplýsingar í síma: 7722524
Hugguleg kvöldstund með góðri tónlist sem styrkir gott málefni. Endilega látið sjá ykkur.