Fjarnám

VIÐBRAGÐSÁÆTLUN VEGNA INFLÚENSU

ÁFANGAR Í BOÐI HAUST 2010

MOODLE-LEIÐBEININGAR

PRÓFTAFLA VOR 2010

PRÓFREGLUR

 


 

 

Velkomin á heimasíðu fjarnáms í FNV


 

Innritun í fjarnám við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra vorönn 2010

 

Innritun fyrir fjarnám á haustönn 2010 hefst 10. ágúst og lýkur 20. ágúst 2010. Hægt er að sækja um rafrænt á heimasíðu FNV, undir umsókn fyrir fjarnema, eða senda umsókn á netfangið sirry@fnv.is

Allar nánari upplýsingar gefur Sigríður Svavarsdóttir í síma 455 8000.

 

Dagskólanemar athugið: Tekið verður við umsóknum ykkar frá 20.-27. ágúst 2010.

 

Fjarnám er góður kostur fyrir þá sem ekki geta stundað nám á hefðbundinn hátt. Skilyrði er að hafa aðgang að tölvu, því námið fer að mestu fram með tölvusamskiptum  við kennara og gegnum samskiptaumhverfið Moodle.

 

Sendir verða út gíróseðlar með og þegar gengið hefur verið frá greiðslu er nemandinn kominn inn í fjarnámið.

 

Verði gíróseðillinn ekki greiddur á gjalddaga, er umsóknin ógild.

Nemandinn fær tölvupóstfang og aðgang að kennsluumhverfinu Moodle og getur þannig verið í samskiptum við kennara sína og umsjónarmann.

Námstími fjarkennslunnar er sá sami og hjá nemendum dagskóla. Í flestum áföngum lýkur náminu með prófi, sem tekið er innan almenns prófatíma skólans.

Nemendur geta samið um að taka próf í heimabyggð sinni, oftast þeim grunnskóla, framhaldsskóla eða fjarnámsstöð sem næst er.  Próf eru þá send á prófstaði og lausnir  sendar til baka til kennara, sem fara yfir þær og gefa einkunnir.

 

Námsefni og kröfur í fjarkennslu FNV eru þær sömu og í dagskóla og því nota fjarnemendur sömu kennslubækur og gögn og aðrir nemendur skólans. Sjá bókalista á vefsíðu skólans.

 

Gjaldskrá utanskólanáms: (Dagskólanemar greiða ekki innritunargjald)

Kennslugjald hefur verið lækkað og verður því ekki um endurgreiðslur að prófi loknu að ræða.

 

Einingar

Innritunargjald

Kennslugjald

Alls

1

6.000

2.500

8.500

2

6.000

5.000

11.000

3

6.000

7.500

13.500

4

6.000

10.000

16.000

5

6.000

12.500

18.500

6

6.000

15.000

21.000

7

6.000

17.500

23.500

8

6.000

20.000

26.000

9

6.000

22.500

28.500

10

6.000

25.000

31.000

11

6.000

27.500

33.500

12

6.000

30.000

36.000

 


Áfangar í boði, bókalistar og áfangalýsingar eru aðgengilegar hér til hliðar á síðunni, þar er hægt að sjá undanfara  hvers áfanga með því að smella á upphafsstaf áfangans.

UPPHAF KENNSLU: Nemendur fá send aðgangs- og lykilorð að Innu og Vefpósti, Viðkomandi kennari sendir síðan á það netfang lykilorð að hverjum áfanga í námsumhverfinu Moodle. Nemendur skrá sig sjálfir inn á Moodle og nota svo aðgangsorðið frá kennaranum til að komast inn á áfangana sína.

Mikilvægt er að nemendur útvegi sér bækurnar tímanlega. Sjá bókalista.

Þegar heimsendur greiðsluseðill hefur verið greiddur  og aðgangs- og lykilorð haf borist og þú búin að skrá þig inn á Moodle ert þú kominn á það svæði þar sem gögn og upplýsingar frá kennaranum eru, einnig geta samskiptin við kennarann farið fram gegnum tölvupóstinn.

NÁMSFYRIRKOMULAG:
Smellið á Námsfyrirkomulag ef þið viljið afla ykkur ítarlegri upplýsinga um fjarnámið.
Námið er fyrst og fremst hugsað sem sjálfsnám undir handleiðslu kennara. Það kefst mikils aga og skipulagningar af hálfu nemenda og kennara.


Þegar smellt er á suma tenglana hér til hliðar opnast skjöl í pdf-sniði en til að geta lesið pdf-skjöl þarftu Acrobat Reader forritið sem hægt er að nálgast hér:
AdobeReader

 

Til baka



Opnunartími skrifstofu FNV
Skrifstofa skólans er opin frá
8.00-16.00

RAFRÆN UMSÓKN

INNTÖKUSKILYRÐI

UMSÓKN FYRIR FJARNEMA

BÓKALISTI HAUST 2010

SKÓLADAGATAL

SKIPURIT FNV

KYNNINGAR

SKÓLAKYNNING

KYNNINGARMYNDBAND

STARFSBRAUT

MÁLMIÐNIR

RAFIÐNIR

TRÉIÐNIR


Til að geta lesið pdf-skjöl þarftu Acrobat Reader forritið sem hægt er að nálgast hér
AdobeReader

 

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra • 550 Sauðárkróki • Sími 455 8000 • Fax 4558099 • Netfang: fnv@fnv.is