BÓKF3ÁR05 - Bókfærsla - Ársreikningar

Ársreikningar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: BÓKF2DR05
Meginhluti áfangans felst í gerð og greiningu ársreikninga. Farið er í lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga. Áhersla er lögð á uppsetningu rekstrar- og efnahagsreiknings í samræmi við lög um ársreikninga. Farið er í gerð sjóðstreymis og áætlanagerðar. Ársreikningar eru túlkaðir með kennitölum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • lögum um bókhald og ársreikninga
  • reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga
  • áritun og skýringum með ársreikningum
  • hvernig bókhald getur auðveldað áæltanagerð, stjórnun, eftirlit og ákvarðanatöku
  • takmarkanir kennitalna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • geta sett upp rekstrar – og efnahagsreikning
  • geta gert sjóðstreymi með beinni og óbeinni aðferð
  • geta reiknað út og túlkað kennitölur út frá ársreikningum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • geta lýst helstu þáttum fjárhagsáætlunar og geta skýrt hana
  • geta sett upp áætlaðan rekstrar- og efnahagsreikning
  • gera áætlanagerð
  • geta sett fram og lesið úr sjóðstreymi
Nánari upplýsingar á námskrá.is