HAGF2RI05 - Rekstrarhagfræði

Rekstrarhagfræði, inngangur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: LÍFS1FL02
Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um rekstur fyrirtækja og umhverfi þeirra. Fjallað er um grunnatriði hagfræðinnar og skilgreiningar á mismunandi skipulagsheildum. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist yfirsýn yfir fyrirtæki sem skipulagsheild og hvernig það þrífst í samkeppni við önnur fyrirtæki. Farið er yfir helstu þætti er varða innra skipulag og ytri aðstæður fyrirtækja. Einnig er farið í flokkun atvinnugreina, kynnst umhverfi og starfsgrundvelli fyrirtækja, stefnumótun og markmiðssetningu og kostnaðargreiningu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • grundvallarhugtökum hagfræðinnar skorti, vali og fórnarkostnaði
  • hugtökunum framboð og eftirspurn
  • helstu framleiðsluþáttum
  • helstu kostnaðarhugtökum
  • muninum á beinum og óbeinum kostnaði
  • muninum á frumvinnslu, úrvinnslu og þjónustu
  • þáttum er ráða staðarvali fyrirtækja
  • starfsgrundvelli fyrirtækja

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • skilja hugtökin tekjur, kostnaður og afkoma
  • nota aðferðir við útreikning framlegðar og rekstrarjafnvægis
  • þekkja mismunandi rekstrarform fyrirtækja
  • reikna út eigið verð afurðar (sjálfskostnað)
  • gera fjárhagsáætlun og skilja hagnýtingu fyrir stjórnendur fyrirtækja
  • vinna að stefnumótun og mikmiðssetningu fyrirtækja

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skilja hvernig verðmæti myndast innan fyrirtækja og hvernig þeim er ráðstafað
  • fjalla um helsut þætti í umhverfi fyrirtækja og greini á milli þátta sem þau hafa áhrif á og greini á milli þátta sem þau hafa áhrif á og þeirra sem þau hafa lítil eða engin áhrif á
  • fjalla um framleiðslukerfi skipulag tækja og mannafla, teikningu framleiðsluferla og samræmingu á afkastagetu
Nánari upplýsingar á námskrá.is