LÍFF3LÞ05 - Lífeðlis- og þjálffræði

lífeðlisfræði, þjálffræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Áfangamarkmið: Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur – nemendur fá tækifæri til að sannprófa það bóklega/fræðilega með þátttöku í verklegum æfingum. Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur læri um starfsemi hjarta og blóðrásarkerfis, lungna og taugakerfis og áhrif markvissrar þjálfunar á þessi líffærakerfi. Einnig verður fjallað um gerð vöðvaþráða og áhrif mismunandi þjálfunar á starfsemi þeirra. Í áfanganum verður fjallað um þol, kraft, hraða og liðleika. - Kynntar verða prófanir ( próf ) til að mæla og meta þessa þætti. Farið verður yfir kannanir tengdar þrekþáttum. Komið er inn á tækni og tækniþjálfun íþróttamanna. Nemendur fræðast um skipulag þjálfunar íþróttamanna og mikilvægi raunhæfrar markmiðssetningar í tengslum við áætlanagerð. Efnisatriði: Lífeðlisfræði, efnaskipti, líffærakerfi, hraðir og hægir vöðvaþræðir, hjarta og blóðrásarkerfi, endurmyndun ATP, orkuþörf við mismunandi álag, þol, þolþjálfun, loftháð þol, loftfirrt þol, grunnþol, sérhæft þol, þjálfunaraðferðir, kraftur, kraftþjálfun, kannanir á þrekþáttum. Liðamót, aðferðir við liðleikaþjálfun, vöðvar, bandvefur, taugakerfi, hraði, hraðaþjálfun, viðbragð, hraðakraftur (snerpa), tækniþjálfun, heildaraðferð, hlutaaðferð, kannanir á hraða og liðleika, skipulag þjálfunar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • starfsemi hjarta og blóðrásarkerfis
  • starfsemi lungna og öndunarkerfis
  • taugakerfi líkamans
  • vöðvakerfi líkamans

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • hagnýta sér aðferðir til að byggja upp og bæta þol, styrk og liðleika við þjálfun
  • læra æfingar og leiki sem nota má markvisst til að byggja upp þol og kraft
  • þekkja helstu þjálfunaraðferðir

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • nota við styrktar-, liðleika- og þolþjálfun
  • nota við kraft og hraðaþjálfun
  • nota við tækni og tækniþjálfun
  • nota við markvissa skipulagningu líkamsræktar og þjálfunar
  • framkvæma kannanir á þrekþáttum
  • nýta sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is