ÍÞRG2GO03 - Golf

Golf

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur. Farið er í helstu grundvallaratriði kennslufræðinnar með það að markmiði að nemandinn læri að nýta þau til að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriðin í golfi. Áhersla er á tæknikennslu og að nemendur læri helstu leikreglur golfs. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að golfið sé kennt á leikrænan og skemmtilegan hátt.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • leikreglum í golfi
  • hvernig á að leiðbeina börnum í golfi
  • kennslu tækniæfinga í golfi
  • skipulagningu golfþjálfunar fyrir yngstu iðkendurna
  • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í golfi

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • leiðbeina byrjendum í golfi
  • nota golf sem skólaíþrótt
  • spila golf sér til heilsubótar og ánægju

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skipuleggja íþróttatíma í golfi fyrir yngstu iðkendurna
  • stjórna hópi af börnum við iðkun golfs
  • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi og finna þeim verkefni við hæfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is