Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir:
  • Í matvælagreinum í maí. Umsóknarfrestur er til 10. apríl.
  • Í byggingagreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 10. apríl.
  • Í prentgreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 10. apríl.
  • Í bíliðngreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 10. apríl.
  • Í hönnunar- og handverksgreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 10. apríl.
  • Í snyrtifræði í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
  • Í vélvirkjun í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
  • Í hársnyrtiiðn í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
  • Í ljósmyndun í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.

Dagsetningar prófanna verða birtar á heimasíðu okkar um leið og þær liggja fyrir.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2018.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs, www.idan.is, og á skrifstofunni.