Málmsuða
Málmsuða

 Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir:

Í matvælagreinum í maí. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.

Í byggingagreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.

Í prentgreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 10. apríl.

Í bíliðngreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 10. apríl.

Í hönnunar- og handverksgreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 10. apríl.

Í snyrtifræði í sept/okt.  Umsóknarfrestur auglýstur síðar.

Í vélvirkjun í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.

Í hársnyrtiiðn í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.

Í ljósmyndun í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.

Dagsetningar prófanna verða birtar á heimasíðu okkar um leið og þær liggja fyrir.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2019.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublöð  -  www.idan.is og á skrifstofunni.

IÐAN - fræðslusetur,

Vatnagörðum 20,  104 Reykjavík,

sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401,

netfang: idan@idan.is