Lið FNV vann stigakeppnina á framhaldsskólamótinu í hestaíþróttum

Lið FNV var með 172 stig, í 2. sæti var lið Fjölbrautarskóla Suðurlands með 158 stig og í 3. sæti var lið Menntaskólans í Kópavogi með 154 stig.

Lið FNV var skipað eftirfarandi nemendum:

Ásdís Ósk Elvarsdóttir
Viktoría Eik Elvarsdóttir
Unnur Rún Sigurpálsdóttir
Sigríður Vaka Víkingsdóttir
Guðmar Freyr Magnússon

Önnur úrslit voru sem hér segir:

Ásdís Ósk: tölt T3 2. sæti, fjórgangur V2 5. sæti.
Viktoría Eik: tölt T3 3. sæti, 1. sæti í skeiði.
Guðmar Freyr: fimmgangur F2 1. sæti, tölt T2 3. sæti. 2. sæti í skeiði,
Unnur Rún: tölt T2 5. sæti.

Skólinn óskar keppendum og kennara þeirra, Arndísi Brynjólfsdóttur, til hamingju með árangurinn.