Námsmaraþon dreifnema á Hvammstanga

Nemendur í dreifnámi FNV á Hvammstanga héldu námsmaraþon sl. nótt. Þau söfnuðu áheitum frá fyrirtækjum og einstaklingum í Húnaþingi vestra og fengu góð viðbrögð. Krakkarnir nýttu tímann til að undirbúa sig fyrir lokapróf, vinna upp áætlanir og ókláruð skilaverkefni.