Vegna mikillar óvissu um ástand í rafmagnsmálum og samgöngum fimmtudaginn 12. desember hefur verið ákveðið að fresta öllum prófum fimmtudagsins til miðvikudags 18. desember. Þann sama dag verða sjúkrapróf haldin,

Þeir nemendur sem geta engan veginn mætt þennan dag býðst að taka próf fimmtudagsins kl. 14:00 föstudaginn 13. desember. Þeir sem þetta á við eru beðnir um að senda tölvupóst á keli@fnv.is þar sem þeir tilkynna í hvaða áföngum þeir hyggjast taka próf á föstudag. Þessi tilkynning þarf að berast fyrir hádegi fimmtudag 12. desember.

Fjarnemar sem komast í próf í heimabyggð geta tekið prófin þar hafi þeir þegar tilkynnt próftöku á viðkomandi stað.