Söngkeppni FNV var haldin á sal skólans föstudaginn 17. febrúar fyrir fullu húsi áhorfenda.  Ellefu flytjendur fluttu 10 lög, hvert öðru betra.  Rannveig Sigrún Stefánsdóttir, sem sigraði í söngkeppni félagsmiðstöðva á Norðurlandi, flutti lag sem gestur og vann hug og hjörtu áhorfenda. 

Úrslitin urðu á þann veg að í fyrsta sæti varð Einar Örn Gunnarsson með lagið Bed of Roses. Í öðru sæti var Ásbjörn Waage með lagið Strutter og í þriðja sæti urðu flytjendurnir Malen Áskelsdóttir og Bjarkey Birta Gissurardóttir með lagið Russian Roulette.

Dómarar kvöldsins þau Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Sólveig Fjólmundsdóttir og Kristján Valgarðsson sáu ástæðu til að veita viðurkenningu utan hefðbundinna verðlauna fyrir listamann kvöldsins.  Þann heiður hlaut Hákon Magnússon Hjaltalín fyrir flutning sinn á laginu Working Class Hero.

Kynnar kvöldsins þær Matthildur Kemp Guðnadóttir og Elín Sveinsdóttir stjórnuðu dagskránni með stakri prýði og héldu áhorfendum við efnið á milli atriða.

Það er óhætt að segja að áhorfendur hafi fengið frábæra skemmtun sem er öllum þeim sem að henni komu til mikils sóma.