Val fyrir haust 2017

Val fyrir haustönn fer fram miðvikudaginn 22. mars.   Mikilvægt er að nemendur vandi valið.  Í valinu þurfið þið að bera saman brautina ykkar og áfanga í boði.  Brautalýsingar eru á heimasíðu skólans  og sömuleiðis áfangar í boði .  Leiðbeiningar um valið eru hér: Val - leiðbeiningar.  Þar er einnig kynning á nýjum valáföngum. 

Heiti áfanga
Skoðum dæmi um áfangaheiti:  STÆR2TÖ05.  Fyrstu fjórir stafirnir eru heiti námsgreinar, STÆR = stærðfræði.  Næsti stafur sýnir þrep áfangans, 2 þýðir að áfanginn er á  2. þrepi.  Næstu tveir stafir eiga að segja eitthvað um innihald áfangans, = tölfræði.  Síðustu tveir gefa upp feiningafjölda:  05 eru 5 feiningar. 

Feiningar
Nýju einingarnar kallast framhaldsskólaeiningar eða feiningar, til aðgreiningar frá gömlu einingunum.  Til einföldunar má segja að 5 fein (nýjar) jafngildi 3 ein (gömlum).  Ef áfangi er 1 fein þá þýðir það samtals 3 daga vinnu nemanda, 6 – 8 klst á dag.

Þrepaskipting
Áfangar raðast á þrep á brautum í nýrri námskrá.  Gerðar eru kröfur um hlutföll áfanga á þrepum.  Lesið brautarlýusingu brautar ykkar vel.  Þar kemur fram hvernig þið þurfið að haga frjálsu vali til að þrepaskipting sé í lagi. 

Frjálst val
Nemendur geta valið áfanga af öðrum brautum og notað sem frjálst val.  Kannið vel hvað er í boði.