Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka næst:
  • Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í 6.-10. janúar 2020. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2019.
  • Í byggingagreinum í janúar 2020. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2019.
  • Í vélvirkjun í febrúar – mars 2020. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019.
  • Í snyrtifræði í febrúar – mars 2020. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019.
  • Í bifvélavirkjun í janúar – febrúar 2020. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2019.
  • Í hársnyrtiiðn í febrúar – mars 2020. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2019.

Nánari dagsetningar verða birtar á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2019.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs, www.idan.is, og á skrifstofunni.