Verðlaunagripur Eddunnar kemur frá FNV

Kennarar og nemendur í málmiðna- og vélstjórnardeild Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hafa undanfarnar vikur unnið hörðum höndum við smíði og frágang Eddunnar. Um er að ræða verðlaunagrip Eddunnar íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunanna.

Eddan er hönnuð af Árna Páli Jóhannssyni og smíðuð, eins og áður er getið, í málmiðna- og vélstjórnardeild skólans. Að smíðinni komu kennarar deildarinnar og u.þ.b. 30 nemendur hennar. Auk verðlaunagripsins sjálfs sá tréiðnadeild skólans um smíði forláta kassa utan um gripina.

Við smíði Eddunar var stuðst við handverk og nýjustu hátækni í tölvustýrðum iðnvélum en skólinn býr yfir tveimur Haas tölvustýrðum rennibekkjum og einum yfirfræsara af sömu tegund. Við smíði kassans var stuðst við ævaforna eldsmíði við smíði lama, handfanga og læsinga, göfugt handverk, tölvustýrðar iðnvélar og nútíma FabLab tækni. Bæði verðlaunagripirnir og kassinn endurspegla þá miklu þekkingu og þann fjölbreytta tækjakost sem nemendur skólans hafa aðgang að í iðnnámsdeildum skólans.

Þess má geta að við smíði Eddunnar fengust nemendur jafnfram við gerð gæðahandbókar í kringum smíðina sem nýtist þeim í námi þeirra. Það er ekki á hverjum degi sem eitt og sama verkefnið útheimtir á sama tíma þekkingu á ævafornu handverki og nútíma tölvutækni.