»
»
Jafnréttisáætlun FNV

Jafnréttisáætlun Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra telur mikilvægt að nýta til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfum bæði kvenna og karla. Jafnréttisáætlun skólans er ætlað að stuðla að jafnri stöðu og virðingu kvenna og karla innan skólans og minna starfsfólk og stjórnendur á mikilvægi þess að allir fái notið sín án tillits til kynferðis.

Í jafnréttisáætlun þessari er gerð grein fyrir jafnréttisnefnd og jafnréttisfulltrúa auk þess sem sett eru fram helstu markmið og aðgerðir skólans sem miða að jafnrétti kynjanna.

Jafnréttisnefnd og jafnréttisfulltrúi

Innan skólans starfar jafnréttisnefnd sem skipuð var þann 10.02.2010 með erindisbréfi til tveggja ára.

Í erindisbréfi jafnréttisnefndar segir:
Hlutverk nefndarinnar er meðal annars að fylgjast með stöðu jafnréttismála í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, móta stefnu og áætlanir skólans í jafnréttismálum og vera ráðgefandi fyrir jafnréttisfulltrúa skólans. Í starfi sínu hafi nefndin til hliðsjónar jafnréttisáætlun menntamálaráðuneytis og Stjórnarráðs og lög og reglugerðir sem við eiga.

Helstu verkefni nefndarinnar eru að:

• endurskoða jafnréttisstefnu skólans
• hafa eftirlit með að farið sé að lögum og reglum í jafnréttismálum og að jafnréttisáætlunum sé fylgt eftir meðal annars með því að safna og birta reglulega upplýsingar um stöðu jafnréttismála í skólanum.
• vera til ráðgjafar við gerð aðgerðaáætlana, ef þess er óskað, um hvernig rétta skuli hlut kynja þar sem það á við
• fylgjast með framgangi verkefna innan skólans sem kveðið er á um í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum
• fylgjast með umræðu um jafnréttismál eftir því sem við verður komið
• standa að fræðslu um jafnréttismál fyrir stjórnendur og annað starfsfólk
• halda uppi umræðu og fræðslu um jafnréttismál og koma á framfæri hugmyndum sem stuðla að auknu jafnrétti.

Í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra starfar jafnréttisfulltrúi. Hlutverk hans er að fjalla um og hafa eftirlit með jafnréttisstarfi í skólanum. Jafnréttisfulltrúi sendir Mennta- og menningarmálaráðuneyti árlega greinargerð um jafnréttisstarf skólans sbr. 13. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Jafnréttisfulltrúi á sæti í jafnréttisnefnd sem sér um gerð starfsmannastefnu.

Helstu markmið og leiðir

Í jafnréttisáætlun Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra er lögð áhersla á jafnan rétt kvenna og karla til náms,l launa, stöðuveitinga, starfa og þátttöku í nefndum og ráðum. Jafnframt er áréttað mikilvægi þess að bæði kyn fái notið starfsþjálfunar og endurmenntunar að jöfnu. Auglýsingar, upplýsingagjöf, kynferðisleg og kynbundin áreitni og tengsl við starfsmannastefnu eru einnig viðfangsefni jafnréttisáætlunar skólans.

Launajafnrétti

Við ákvörðun launa skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf. Kynjajafnréttis sé gætt við úthlutun hvers konar þóknunar og hlunninda, beinna og/eða óbeinna. Einnig skulu kynin njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt og hvers konar önnur starfskjör eða réttindi sem metin verða til fjár sbr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.

Markmið Ábyrgð Aðgerð Eftirfylgni og tími
Að karlar og konur hafi sömu tækifæri til náms.

Skólameistari.
Aðstoðarskólameistari.
Áfangastjóri.

Aðgengi að námi sé óháð kynferði.
Stöðumat árlega og oftar ef þurfa þykir.
Að karlar og konur njóti sömu kjara fyrir sambærileg og jafn verðmæt störf.
Jafnréttisfulltrúi og jafnréttisnefnd. Viðmið við ákvörðun launa sé skýr og öllum ljós.  
    Fá reglulega upplýs. frá stjórnendum FNV.  
  Jafnréttisfulltrúi. Fylgist með því sem gert er í öðrum skólum. Jafnréttisfulltrúi kynnir fyrir jafnréttisnefnd í mars hvert ár.

Þátttaka í nefndum og ráðum

Unnið skal markvisst að því að jafna fjölda kvenna og karla í nefndum, ráðum og nefndum á vegum skólans. Þegar óskað er eftir tilnefningum í nefndir og ráð skal farið fram á að tekið sé mið af 15. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, en þar segir:

Við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða. Þetta gildir einnig um stjórnir opinberra hlutafélaga og fyrirtækja sem ríki eða sveitarfélag er aðaleigandi að.
Þegar tilnefnt er í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skal tilnefna
bæði karl og konu. Tilnefningaraðila er heimilt að víkja frá skilyrði 1. málsl. þegar
hlutlægar ástæður leiða til þess að ekki er mögulegt að tilnefna bæði karl og konu.
Skal tilnefningaraðili þá skýra ástæður þess. Skipunaraðila er heimilt að víkja frá
ákvæði 1. mgr. ef undanþáguheimild 2. mgr. á við.

Markmið Ábyrgð Aðgerð Eftirfylgni og tími

Að jafna hlutföll karla og kvenna á einstökum námsbrautum.

Að jafn margar konur og karlar sitji í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum skólans.

Skólameistari.
Aðstoðarskólameistari.
Áfangastjóri.

Jafnréttisfulltrúi.

Tilnefningaraðilum sé gert að tilnefna bæði karla og konur.

Reglulega verði birt yfirlit yfir hlutfall kynja í nefndum.

Jafnréttisnefnd kynni stjórnendum og starfsfólki stöðuna í janúar og september hvert ár.

Auglýsingar og upplýsingagjöf

Í auglýsingum skulu störf vera ókyngreind og höfða til beggja kynja. Þegar birtar eru tölfræðilegar upplýsingar á vegum skólans skulu þær jafnan kyngreindar, eftir því sem við á.

Markmið Ábyrgð Aðgerð Eftirfylgni og tími

Að auglýsingar séu ókyngreindar og höfði til beggja kynja.

Að tölfræðilegar upplýs. séu kyngreindar eftir því sem við á.

Skólameistari.
Aðstoðarskólameistari.
Áfangastjóri.

Farið yfir auglýsingar sem fara frá skólanum.

Leitast verður við að kyngreina upplýs. á vef, í vefriti og fréttatilkynningum.

Jafnréttisfulltrúi fylgist með því að aðgerðir eigi sér stað og fari tvisvar á ári yfir stöðuna og upplýsi jafnréttisnefnd.

Stöðuveitingar og störf

Jafnréttissjónarmið verður að meta til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið sem ráða við stöðuveitingar. Stefnt skal að því að halda sem jöfnustu hlutfalli kynja í störfum innan skólans. Þess verði gætt að einstaklingum sé ekki mismunað vegna kynferðis við úthlutun verkefna eða þegar teknar eru ákvarðanir um framgang í störfum. Jafnframt skulu bæði kyn njóta sömu tækifæra til að axla ábyrgð.

Markmið Ábyrgð Aðgerð Eftirfylgni og tími
Að jafna fjölda karla og kvenna í sambærilegum störfum í skólanum.

Skólameistari.
Aðstoðarskólameistari.
Áfangastjóri.

Samantekt á kynjahlutföllum í öllum starfshópum ásamt yfirliti yfir auglýst störf, umsækjendur og ráðningar.

Fylgjast markvisst með úthlutun verkefna og tilfærslum innan skólans.

Jafnréttisnefnd fari yfir stöðu mála í desember ár hvert.

Starfsþjálfun og endurmenntun

Konur og karlar skulu njóta sömu möguleika til menntunar og starfsþjálfunar. Til að tryggja að svo megi vera þarf að skýra endurmenntunarstefnu skólans í starfsmannastefnu og safna skipulega upplýsingum um endurmenntun starfsfólks. Leitast þarf við að höfða til beggja kynja í tilboðum er lúta að starfsþjálfun og menntun.

Markmið Ábyrgð Aðgerð Eftirfylgni og tími

Að konur og karlar njóti sömu möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar.

Að námstilboð skólans höfði bæði til karla og kvenna.

Skólameistari.
Aðstoðarskólameistari.
Áfangastjóri.

Kyngreind samantekt með uppl. um þátttöku í endurmenntun.

Fylgjast markvisst með kynjahlutfalli í námi við skólann.

Jafnréttisnefnd fari yfir stöðu mála í desember ár hvert.

Kynferðisleg og kynbundin áreitni

Allir nemendur og starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu og að þeir sæti ekki kynferðislegri eða kynbundinni áreitni.

• Kynferðisleg áreitni er kynferðisleg hegðun sem er ósanngjörn og/eða móðgandi og í óþökk þess sem fyrir henni verður. Kynferðisleg áreitni getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn.
• Kynbundin áreitni er hvers kyns ósanngjörn og/eða móðgandi hegðun, sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk og hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess sem fyrir henni verður. Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn.

Telji nemendur eða starfsfólk sig verða fyrir kynferðislegri eða kynbundinni áreitni má t.d. leita til trúnaðarmanna eða jafnréttisfulltrúa eins og fram kemur í starfsmannastefnu.

Starfsmannastefna

Jafnréttissjónarmið og leiðir til að vinna að jafnri stöðu kynjanna verða að vera virkur þáttur í starfsmannastefnu skólans. Í starfsmannastefnunni þarf meðal annars að taka mið af jafnrétti þegar fjallað er um líðan nemenda og starfsfólks á vinnustað og starfsanda. Einnig þarf í starfsmannastefnu að vera ljóst hvernig nemendum og starfsfólki er gert kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum
eða annarri vinnuhagræðingu, eftir því sem við verður komið. Jafnréttisáætlun og starfsmannastefna skólans verða að vera samhljóma. Til að gæta jafnréttissjónarmiða tekur jafnréttisfulltrúi þátt í endurskoðun starfsmannastefnu og er það eitt af hlutverkum jafnréttisnefndar að vera til ráðgjafar við endurskoðunina.


Endurskoðun og samþykkt

Jafnréttisáætlun þessi er gerð í samræmi við 18. grein laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 þar sem kveðið er á um að leggja beri áherslu á að tryggja konum og körlum jafnan rétt. Jafnframt segir að jafnréttisáætlun og jafnréttissjónarmið í starfsmannastefnu skuli endurskoða á þriggja ára fresti.

Jafnréttisáætlun þessi var samþykkt á kennarafundi 10. febrúar 2010.