Moodle-leiðbeiningar

Hvernig skrái ég mig á  Moodle námsvefinn?

Opnaðu heimasíðuna http://www.fnv.is og smelltu á „Moodle“. 
Þegar farið er inn í fyrsta sinn skráir þú sjálf(ur) notendanafn og lykilorð sem skólinn hefur úthlutað þér sbr. 1 og smellir á „Nýskrá notanda“.  

1.

Notendanafn

Lykilorð

Nýskrá notanda!
Glatað lykilorð

 

 

2.


Til þess að öðlast fullan aðgang að áföngum er nauðsynlegt að skrá sig sem notandi að námsstjórnunarkerfinu. Hafðu í huga að aðgengi að einstaka áföngum í kerfinu getur einnig verið stýrt með skráningarlykli sem kennari úthlutar nemendum. Nýskráning í kerfið er einföld:

 

1.  Fylltu út Nýr notandi skráningarformið.

2.  Tölvupóstur verður sendur á uppgefið netfang (sem skólinn hefur úthlutað þér).

3.  Lestu tölvupóstinn vel og smelltu á vefslóðina sem hann inniheldur.

4.  Innskráning þín verður staðfest og aðgengi að kerfinu tryggt.

5.  Veldu þá áfanga sem þú ert skráð(ur) í.

6.  Ef spurt er um "skráningarlykil" - gefðu þá upp skráningarlykilinn sem kennari viðkomandi áfanga hefur úthlutað og sent þér í tölvupósti. 

7.  Nú hefur þú fullan aðgang að kerfinu. Framvegis þarftu einungis að slá inn notendanafn þitt og lykilorð  til að fá aðgang að þeim áföngum sem þú ert skráð(ur) í.

8. Athugið að nota fnv-netfangið þegar þið skráið ykkur.