Námsfyrirkomulag
- Fjarnám í FNV er að mestu leyti nám á netinu og eru áfangar settir upp á kennsluvefnum Moodle.
- Boðið er uppá flesta þá áfanga sem kenndir eru í dagskóla á viðkomandi önn í fjarnámi.
- Ekki er sett hámark einingafjölda, sem hægt er að taka á hverri önn, en rétt er að benda á að 3ja eininga áfangi samsvarar u.þ.b. 9 klst. vinnu á viku.
- Sjálfsagi er mikilvægur því að hluta til er fjarnám sjálfsnám þar sem ekki er hægt að fá svör fá kennurum strax og spurningar vakna. Það er því mikilvægt að lesa allar leiðbeiningar vel, hafa tímasetningar í heiðri og leysa öll verkefni sem fyrir eru lögð. Vakni spurningar, sem ekki eru svör við í námsumhverfinu, er hægt að senda fyrirspurn til kennara og ber honum að svara eigi síðar en annan virkan dag.
Markmið með fjarnámi:
- Markmiðið með því að bjóða upp á fjarnám er að gefa sem flestum kost á því að stunda framhaldsnám óháð stað og stund.
- Grunnskólanemendur eru sístækkandi hópur fjarnemenda. Þeir sem hafa lokið grunnskólaprófi í viðkomandi námsgrein eða standa mjög vel í henni geta stundað fjarnám og fengið það metið í framhaldsskóla síðar.
- Nemendur, sem stunda nám framhaldsskólum, geta tekið áfanga í fjarnámi og þannig stytt leiðina að lokaprófi.
- Námið er fyrst og fremst hugsað sem sjálfsnám undir handleiðslu kennara. Það kefst mikils aga og skipulagningar af hálfu nemenda og kennara.
Hægt er að ljúka stórum hluta af einingum til stúdentsprófs í fjárnámi og brautskrást af eftirtöldum brautum:
- Félagsfræðibraut
- Málabraut
- Náttúrufræðibraut
- Viðskipta- og hagfræðibraut
Einnig af styttri brautum eins og:
-
Skrifstofubraut
- Sjúkraliðabraut
Samskipti:
- Samskipti við kennara fara fram í Moodle og tölvupósti. Þar er að finna námsáætlanir, verkefni, próf og fleira sem skiptir máli í náminu.
Námsefni:
- Bókalista má nálgast á heimasíðu skólans. Nemendafélagið er með skiptibókamarkað í skólanum í upphafi annar. Skagfirðingabúð er einnig með bóksölu og sumar bækur eins og t.d. bækur frá Iðnú eru seldar á skrifstofu skólans. Helstu bókaverslanir í Reykjavík selja þær bækur sem notaðar eru í kennslunni.
Nemendur þurfa að:
- hafa daglegan aðgang að tölvu sem tengd er netinu og ræður við vefinn.
- hafa lágmarkskunnáttu í ritvinnslu og tölvunotkun.
- hafa nokkra æfingu í að nota veraldarvefinn og síðan tileinka sér vinnu með námskeiðsvefinn Moodle. Þar eru bókalistar, námsáætlanir, verkefni, gagnvirk próf og ítarefni allra áfanga.
- hafa tíma til að stunda námið. Einingafjöldi áfanga er þriðji tölustafurinn í númeri hans. T.d. DAN 103 er 3 einingar, STÆ 102 er 2 einingar. Almennt er reiknað með að tíminn talinn í klukkustundum sem þarf til fjarnámsins á viku sé sú tala sem út kemur þegar einingafjöldinn er margfaldaður með 3. DAN 103 er þá 9 klst á viku og STÆ 102 6 klst.
Mat á fyrra námi:
- Fjarnámsnemendur sem óska eftir mati á fyrra námi skulu senda inn öll gögn um nám þeirra í öðrum skólum til fjarnámsstjóra.
Fyrstu skrefin:
- Skráðu þig strax á Moodle eftir að kennarinn hefur sent þér tölvupóst með skráningarlykli að áfanganum. Á Moodle setur kennarinn námsáætlun og allar þær upplýsingar sem þú þarft að fá.
- Hver kennari setur tímaramma til verkefnaskila og ber að virða hann.
Námið:
Verklagsreglur kennara:
- Kennari á að setja fram kennsluáætlun sem inniheldur m.a. markmið áfangans og áætlaða yfirferð. Það er í höndum hvers kennara hversu nákvæm áætluð yfirferð er.
- Kennari á að hafa samband við nemendahópinn reglulega.
- Kennara ber að setja námsefni fram á aðgengilegan hátt og leitast við að útskýra það fyrir nemendum á eins skýran hátt og honum er unnt. Einnig skal hann vísa nemendum á hvar ítarefni er að finna.
- Kennari á að meta frammistöðu nemenda fyrir skil á verkefnum, með einkunnum og/eða skriflegum umsögnum sem fela í sér leiðréttingar, leiðbeiningar og útskýringar.
- Kennari á að svara fyrirspurnum nemenda innan tveggja virkra daga. Kennari skal þó hafa lengri tíma ef um stærri verkefni/ritgerðir er að ræða. Ef kennari metur ekki verkefni strax, skal hann gera nemendum ljóst hvenær þeir eiga von á námsmati.
Verklagsreglur fjarnámsnemenda:
- Nemanda ber að lesa kennslu- /námsáætlun ítarlega í upphafi.
- Nemanda ber að fara inn í kennsluumhverfi á netinu eins oft og kennarinn leggur til og helst ekki sjaldnar en vikulega.
- Nemandi á að virða þær reglur sem kennari setur um verkefnaskil.
- Nemandi á að láta kennara vita ef hann getur ekki skilað verkefni á tilsettum degi og biðja þá um frest.
- Nemandi á að láta kennara vita ef hann ætlar að hætta námi í áfanganum.
- Nemendur eru hvattir til að senda fyrirspurnir til kennara í tölvupósti eða Moodle.
- Tæknilegum vandamálum svarar umsjónarmaður fjarnáms sirry@fnv.is eða í síma
455 8000 á skrifstofutíma og 455 8075 eftir lokun skiptiborðs.
Námstími - lokapróf:
- Haustönn er frá því í lok ágúst og fram að jólum. Vorönn er frá því í byrjun janúar og fram í maí. Hvorri önn er skipt í tvo hluta í dagskóla og eru miðannarpróf hjá dagskólanemendum, en ekki er fjarnámsnemendum skylt að taka þau próf. Það er þó heimilt, en þau próf eru eingöngu lögð fyrir í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki.
- Lokapróf fara fram í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki samhliða öðrum prófum í desember og maí.
- Prófastaðir eru fjölmargir en nemendur þurfa að sækja um það til umsjónarmanns fjarnáms þurfi þeir að taka prófin utan skólans. Flestir framhaldsskólar á landinu taka að sér að leggja prófin fyrir og einnig er hægt að sækja um að taka próf í grunnskólum landsins óski nemendur eftir því og aðstæður fyrir hendi í skólunum. Nemendur erlendis skulu hafa samband við næsta Sendiráð eða skóla sem er tilbúinn til að þjónusta. Þar þarf að útvega ábyrgðarmann og er verkefni hans það að taka við prófum í tölvupósti, leggja þau fyrir og senda úrlausnir til baka.
Prófareglur og fyrirkomulag prófa
Fyrir alla nemendur sem taka próf:
- Nemanda ber að mæta stundvíslega í þau próf sem hann er skráður í og hafa meðferðis persónuskilríki.
- Prófað er á SAL og í skólastofum í Bóknámshúsi. Í anddyri Bóknámshúss er tilkynnt á töflum hvar próf fara fram.
- Nemandi skal leggja persónuskilríki á prófborð svo yfirsetumaður geti borið þau saman við nafnalista.
- Próftími er 80 mín. í 50 % prófi, en 160 mín. í 100 % prófi.
- Nemendur mega ekki yfirgefa prófstofu fyrr en 40 mín. eru liðnar af próftímanum.
- Verði nemandi uppvís að því að hafa rangt við í prófi, eða bera með sér óleyfileg gögn, veita eða þiggja hjálp frá öðum nemanda, varðar það brottrekstri úr prófi og fær nemandinn falleinkunn.
- Nemendum er óheimilt að hafa töskur með sér í próf, sama gildir um síma, iPod og önnur slík tæki, líka þó slökkt sé á þeim. Yfirsetumenn munu skoða í pennaveski.
- Nemendur geta haft með sér hressingu, en mælt er með ílátum sem ekki skrjáfar í.
- Sömu reglur gilda á öllum prófstöðum okkar.
- Þeir sem þurfa lituð prófblöð, eða aðra sérþjónustu þurfa að óska eftir því fyrir 15. nóvember og senda afrit af greiningu.
Veikindi:
- Geti nemandi ekki mætt til prófs vegna veikinda, skal hann tilkynna það áður en próf hefst og skila læknisvottorði eins fljótt og mögulegt er.
- Þeir sem taka próf á öðrum prófstöðum en Fjölbrautaskólanum tilkynna veikindi til skrifstofu skólans og ábyrgðarmanns á viðkomandi prófstað.