Kostnaður við ljósritun, prentun 10 kr. fyrir hvert blað (A4, svart/hvítt).
Uppsetning prentara og leiðbeiningar
Sláið inn eftirfarandi upplýsingar í vafrann hjá ykkur, þurrkið út línuna http://www.fnv.is og skrifið \\grettir\print.
Prentari og ljósritunarvél eru staðsett inn af NEMÓ, hægt er að prenta, gata og hefta með einu og sama tækinu.
Þegar búið er að senda prentun á prentarann þarf að leysa prentverkið út, það er gert með því að renna nemendakortinu í kortalesarann sem tengdur er við prentarann. Einnig er hægt að nota nemendanúmerið til að leysa það út, það er gert með því að slá inn númerið á númeraborðið sem er á kortalesaranum.
Hver nemandi er með reikning í staðarneti skólans. Prentverk safnast í prentbiðröð og prentast einungis þegar korti er rennt í gegnum kortalesara og eða nemendanúmer slegið inn. Um leið dregst þessi prentun eða ljósritun frá reikningi viðkomandi nemanda.
Með stundatöflu fengu allir nemendur afhent prentkort með 50 bls. (A4, svart/hvítt) innistæðu.
Prentkortið gildir út önnina og hægt er að kaupa áfyllingu á kortið á skrifstofu skólans.
Týnist kortið þarf að greiða kr. 500 fyrir nýtt kort.