PRÓFREGLUR

Almennar prófreglur
1. Nemendur skulu mæta tímanlega til prófs. Á göngum Bóknámshúss er tilkynnt á töflum hvar próf fara fram.
2. Próftími er 90 mín.
3. Nemendur mega ekki yfirgefa prófstofu fyrr en 40 mín. eru liðnar af próftímanum.
4. Geti nemandi ekki mætt til prófs vegna veikinda, skal hann tilkynna það áður en próf hefst og skila læknisvottorði eins fljótt og mögulegt er.
5. Nemendum er óheimilt að hafa töskur með sér í próf, sama gildir um síma, iPod og önnur slík tæki, líka þó slökkt sé á þeim. Yfirsetumenn munu skoða í pennaveskim og fletta leyfilegum hjálpargögnum.
6. Verði nemandi uppvís að því að hafa rangt við í prófi, eða bera með sér óleyfileg gögn, varðar það ógildingu prófs.

2.6.9 Frávik frá prófreglum

Fatlaðir og langveikir nemendur, nemendur með lesröskun (lestrar- og skriftarörðugleika) og /eða aðra staðfesta skynjunarörðugleika geta sótt um frávik frá hefðbundnu námsmati. Um er m.a. að ræða sérstaka samsetningu prófa, lengri próftíma, sérhönnuð próf, notkun hjálpargagna, aðstoð í prófum, munnleg próf o.fl. Nemandi skal sækja um slík frávik til námsráðgjafa sem leggur umsóknina fyrir prófstjóra.