2.6 Reglur

2.6.1 Umgengnisreglur
Með því að greiða innritunargjald hefur nemandinn gert samning við yfirvöld skólans um ástundun náms og góða umgengni í skólanum. Hann hefur jafnframt samþykkt ýmsar reglur sem honum ber að virða. Þær helstu eru:
1. að hvorki reykja né nota annað tóbak í húsakynnum skólans eða á lóðum hans. Sömu reglur gilda á heimavist skólans,
2. að ganga hreinlega um innan- og utandyra, þar með talið að ganga á inniskóm innanhúss og setja rusl einungis í þar til gerða sorpílát. Sömu reglur gilda um heimavist skólans,
3. að neyta ekki áfengis eða annarra vímuefna né að hafa þau um hönd, né heldur að vera undir áhrifum þeirra í húsum eða á lóðum skólans, eða á samkomum í nafni skólans og/eða nemendafélagsins. Sama gildir um heimavist skólans.
4. neyta ekki matar eða drykkjar í kennslustundum. Sama gildir um sælgætisneyslu,
5. að hafa farsíma ekki uppi við í kennslustundum. Hafi nemandi farsíma í fórum sínum skal vera slökkt á honum og hann geymdur í skólatösku viðkomandi.
6. að hafa kynnt sér reglur um eftirlits- / öryggismyndavélar á heimavist og í öðru húsnæði skólans og réttindi sín í því sambandi.
Sé gegn þessum skilyrðum brotið getur það varðað brottrekstur eða eftir atvikum synjun um skólavist og / eða heimavist.

2.6.2 Verklagsreglur í kennslustundum
1. Kennari er verkstjóri í kennslustundum og stjórnar því sem þar fer fram.
2. Það er réttur kennara og nemenda að vinnufriður ríki í kennslustundum.
3. Kennara er heimilt að færa nemendur í sundur sem trufla kennslu.
4. Kennara er heimilt að vísa nemanda, sem truflar kennslu eða óhlýðnast kennara, úr kennslustundum. Hann skal tilkynna stjórnendum um brottvísunina að lokinni kennslustund. Nemanda skal vísað á fund skólastjórnenda svo fljótt sem auðið er.
5. Kennara er heimilt að neita nemanda, sem vísað hefur verið úr kennslustund, um að sækja tíma í viðkomandi áfanga þar til hann hefur gert hreint fyrir sínum dyrum gagnvart stjórnendum og viðkomandi kennara.
6. Heimilt er að víkja nemanda úr skóla sem truflar vinnufrið í kennslustundum.

2.6.3 Reglur um umgengni í tölvustofum

1. Allir nemendur FNV hafa aðgang að  tölvustofum og bókasafni til æfinga- og verkefnavinnu.
2. Tölvuver og bókasafn eru vinnustaðir. Stranglega er bannað að afrita forrit/leiki inn á tölvur skólans, breyta uppsetningu skjámynda og aðgangi að tækjum og forritum.
3. Öll neysla fastrar og fljótandi fæðu er stranglega bönnuð í tölvustofu og á bókasafni.
4. Nemendur skulu virða tímatöflu og víkja úr stofu í lok tíma svo ræstingafólk komist að.
5. Ganga skal vel um stofu og bókasafn, búnað og bækur og skilja ekki eftir rusl.
6. Allir skulu skrá sig í gestabækur tölvuvers og bókasafns sem liggja frammi.

2.6.3.1 Reglur um notkun á skólaneti FNV
Með notendanafni og lykilorði hafa allir nemendur aðgang að skólaneti FNV og póstkerfi.
Tölvubúnaður skólans er eign hans og ætlaður til náms, kennslu, kynningar og annarra þátta sem samrýmast markmiðum skólans.
1. Skólanetið er lokað frá miðnætti til kl. 07:00 alla daga.
2. Á heimavist er skólanetið opið allan sólarhringinn um helgar.
3. Nemendur, sem eru að vinna verkefni vegna náms, hafa forgang að tölvum skólans.
4. Virða ber friðhelgi notenda.
5. Handhafi notendanafns er ábyrgur fyrir að notkun þess sé lögleg.
6. Skólinn áskilur sér fullan rétt til að meðhöndla gögn með notendanúmerum, að fara yfir, skoða og eyða efni á gagnasvæðum.
7. Fylli nemandi heimasvæðið sitt umfram 5 Mb verður getur kerfisstjóri eytt gögnum án fyrirvara.
8. Gögnum á heimasvæði nemanda er eytt í lok hvers skólaárs.
9. Innbrot eða tilraun til innbrots í tölvukerfi verður kært til rannsóknarlögreglu.
10. Notendur kerfisins skulu kynna sér þessar reglur þar sem þeir eru ábyrgir samkvæmt þeim. Þá er vísað til notkunarskilmála Isnets, notkunarreglna Íslenska menntanetsins og personuvernd.is.
Óheimilt er að:
11. lána öðrum netfang og lykilorð,
12. nota aðgang að neti skólans til þess að reyna að komast ólöglega inn á net eða tölvur í eigu annarra,
13. sækja, senda, geyma eða nota á neti skólans forrit sem hægt er að nota til innbrota eða annarra skemmdarverka,
14. breyta vinnuumhverfi á tölvum skólans,
15. breyta, afrita eða fjarlægja vélbúnað, hugbúnað eða gögn í eigu skólans,
16. setja inn á eigin svæði og almenn gagnasvæði, hugbúnað án samþykkis kerfisstjóra,
17. að vista gögn á harða diska í tölvum skólans,
18. nota póstkerfið til að senda hvers kyns dreifi- og eða keðjubréf.
Brot á þessum reglum geta leitt til lokunar á aðgangi að tölvukerfi skólans eða fyrirvaralausrar brottvísunar úr skóla- sé um alvarlegt brot að ræða.

2.6.4 Verklagsreglur um innritun nemenda
Nýskráning nemenda:
Þegar nýr nemandi er skráður í skólann þarf að gæta þess að allar upplýsingar um hann séu réttar s.s. netfang, dæmi: Tölvupóstfang þarf að vera fornafn, fyrsti stafur í miðnafni og fyrsti stafur í föðurnafni t.d. Jón Friðberg Hjartarson verður þá
jonfh@fnv.is

Skilgreining nemanda þarf að vera rétt, s.s. nýnemi eða endurinnritaður, þessar skilgreiningar fara svo út á 5. viku og breytast þá í „í námi“.
Í desember og júní þarf að afskrá (hreinsa út) þá nemendur sem vitað er að ekki komi í skólann.
Áður en önn hefst þurfa að liggja fyrir eftirfarandi upplýsingar:
1. Fjórum virkum dögum áður en önn hefst þurfa eftirfarandi atriði að liggja fyrir:
Listi fyrir kerfisstjóra yfir alla nemendur sem hefur að geyma notendanúmer, lykilorð, kennitölu, GSM síma og netfang.
Eftir að þessi listi hefur verið keyrður þarf að skilgreina hvern nemanda sem skráður er inn í skólann sem t.d. „innritaður“ til aðgreiningar frá fyrri skráningu.
2. Þremur virkum dögum áður en önn hefst þurfa eftirfarandi atriði að liggja fyrir:
Ljósritunarkóði, matarkort, skólakort, aðgangs- og lykilorð í kerfi skólans, blað með notandanafni og lykilorði nemanda. Allt þetta þarf að afhenda nemendum á fyrsta degi skóla.
Vika 1
Innritun og breytingar á stundatöflu standa yfir, þá verða engir nýjir listar keyrðir.
Vika 2
Þriðjudaginn í annarri viku þarf að liggja fyrir listi yfir alla nemendur sem hafa skráð sig inn í skólann eftir að fyrsti listi var gerður. Þessi listi þarf einnig að hafa notendanúmer, lykilorð, kennitölu, GSM síma og netfang nemanda. Einnig er tekinn út úr kerfinu listi yfir alla nemendur og notaður í Moodle. Áríðandi er að allir nemendur og utanskólanemendur séu með rétta áfanga skráða í Innu.
Listi yfir alla þá nemendur sem eru í nemendafélaginu skal vera tilbúinn í síðasta lagi á föstudegi svo að hægt sé að afhenda nemendafélagskort á þriðjudegi í þriðju viku.
Vika 3
Nemendafélagskort eiga að vera tilbúin um hádegi á þriðjudegi í þriðju viku.
Vika 4
Tíðindalaus
Vika 5
Skilgreiningar nemenda sem skilgreindir eru nýnemar eða endurinnritaðir skulu breytast í „í námi“.
Annað:
Utanskólanemendur skulu sækja um skólavist og greiða skólagjöld á netinu inn á reikning skólans. Þegar skólinn er búinn að samþykkja og skrá viðkomandi í nám sem utanskólanemanda skal skólinn senda staðfestingu í tölvupósti til viðkomanda.
Sýnidæmi skal gera um innritun fjögurra tegunda innritunar; 1. innritun nýnema, 2. innritun eldri nemanda frá síðustu önn, 3. innritun eldri nemanda sem ekki var á síðustu önn, 4. innritun utanskólanemanda.
Listar:
Ljósritunarkóði
Matarkort
Nemendafélagskort
Skólakort
Kerfi skólans
Moodle
Blað með notandanafni og lykilorði nemanda

2.6.5 Reglur heimavistar
1. Heimavist Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og útibú hennar eru heimili nemenda og skulu þeir njóta þar heimilisfriðar. Markmið þessara heimavistarreglna er að tryggja hvíldar- og vinnufrið vistarbúa og vera til leiðsagnar ef heimilisfriðnum er stefnt í hættu.
2. Skólameistari fer með yfirstjórn heimavistar og vistarstjórar í umboði hans. Vistarbúum ber að fara að fyrirmælum þeirra í öllu sem varðar umgengni á heimavist og þessum heimavistarreglum. Heimavistarstjórn er heimilt að setja sérreglur um útibú heimavistar. Allir heimavistarbúar eru skyldugir til að sækja vistarfundi sem skólameistari, vistarstjóri eða heimavistarráð boða. Heimavistarstjórn skal halda gerðabók um störf sín.
3. Skólameistari og vistarstjóri eiga aðgang að herbergjum vistarbúa og eftirlitsmyndavélabúnaði á göngum og í anddyri hvenær sem er til eftirlits. Þeir skulu gæta tillitssemi og nærgætni.
Íbúar heimavistar eiga rétt á að fá vitneskju um:
1. hvaða upplýsingar um þá er eða hefur verið unnið með,
2. tilgang öryggis-/eftirlitsmyndavéla,
3. hver fær, hefur fengið eða mun fá upplýsingar um þá,
4. hvaðan upplýsingarnar koma,
5. hvaða öryggisráðstafanir eru viðhafðar. (Sbr. lög nr. 77/ 2000)
Íbúar á heimavist skulu kynna sér reglur um öryggis- /eftirlitsmyndavélar sbr. gr. 2.6.5.1
4. Heimavistarstjórn skipa: Skólameistari, vistarstjórar, þrír trúnaðarmenn nemenda og þrír til vara kosnir af nemendum í apríl mánuði ár hvert og forstöðumaður mötuneytis þegar málefni mötuneytis er á dagskrá. Heimavistarráð er skipað sömu aðilum öðrum en skólameistara. Við kosningu trúnaðarmanna skal þess gætt að fulltrúar séu af sitt hvoru kyni. Starfstími fulltrúa nemenda hefst í byrjun næstu annar eftir að þeir hafa verið kosnir og lýkur við lok skólárs. Hafi nemandi fengið áminningu á skólaárinu vegna brota á reglum heimavistar telst hann ekki kjörgengur til trúnaðarstarfa á heimavist. Heimavistarstjórn kemur saman eigi sjaldnar en tvisvar á önn.
5. Hver vistarbúi skal annast ræstingu á herbergi sínu, sturtuklefa og salerni. Herbergi skulu þrifin minnst einu sinni í viku. Vistarbúa er ekki heimilt að ganga um innan vistarinnar á útiskóm. Heimavistarstjórn getur ákveðið nánar um frekari ræstingu á heimvistarhúsnæðinu á kostnað nemanda ef ræsting er ekki talin viðunandi að hennar mati. Nemendum er skylt að halda umhverfi vistarinnar hreinu. Vistarstjórar geta gert nemendum að hreinsa lóðina eftir þörfum eða laga til innan vistar.
6. Hver nemandi er ábyrgur fyrir að herbergi það, sem hann gistir, sé í sama horfi í annarbyrjun og annarlok. Nemendur eru bótaskyldir fyrir skemmdum, sem þeir kunna að valda og skulu þeir greiða tryggingargjald að upphæð kr. 6.000-, sem þeir fá endurgreitt í annarlok, ef engar skemmdir eru eða vanþrif, sbr. 5 grein. Skemmdir á húsum eða munum heimavistar skal tilkynna vistarstjóra, næturverði eða vistarráði heimvistar. Verði nemandi uppvís að þjófnaði á eigum eða munum vistarbúa eða starfsmanns skólans, ber að vísa honum af vist. Nemendur eru ábyrgir fyrir eigum sínum öllum. Nemendur skulu læsa dyrum að herbergjum sínum fari þeir frá. Skólinn tryggir hvorki skófatnað nemenda né annan fatnað.
7. Vistarbúar skulu ávallt gæta þess að valda ekki öðrum ónæði, t.d. með ærslum eða öðrum hávaða m.a. frá hljómflutningstækjum, útvarpi, sjónvarpi, tölvu eða á annan hátt. Eftir kl. 19:00 á að vera næði til heimanáms. Frá miðnætti til klukkan 07:00 skal vera alger næturró, heimsóknir nemenda sín á milli eru óheimilar á þessum tíma án sérstaks leyfis vistarstjóra og gilda þá sömu ákvæði og um næturgesti.
8. Heimavistinni er lokað kl. 24:00 alla virka daga og skulu ósjálfráða vistarbúar vera komnir inn fyrir lokun. Nemendur sem orðnir eru sjálfráða skulu vera komnir inn á heimavist fyrir kl. 02:00. Um helgar skulu nemendur vera komnir inn á heimavist fyrir kl. 04:00. Vistarstjóra er heimilt að ákveða annan lokunartíma telji hann ástæðu til. Ætli ósjálfráða nemandi að vera fjarverandi um nætursakir þarf forráðamaður að gefa leyfi fyrir því. Sjálfráða vistarbúar skulu tilkynna vistarstjóra eða næturverði um fjarveru sína að næturlagi.
9. Gestir á heimavist skulu fara eftir þessum heimavistarreglum og er hver vistarbúi ábyrgur fyrir sínum gesti. Ber honum að upplýsa viðkomandi um tilvist öryggis-/eftirlitsmyndavéla á heimavistinni og reglur sem um þær gilda sbr. 3. grein. Engar heimsóknir eru leyfðar eftir kl. 24:00. Sæki nemandi um leyfi til að hafa næturgest getur vistarstjóri heimilað það. Leyfi herbergisfélaga verður að liggja fyrir áður en slíkt er heimilað og forráðamanna ef nemandi er ekki sjálfráða.
10. Fari fjarvistarstig nemanda í fullu námi yfir 150 stig á önn eða nemandi vanrækir nám sitt, fyrirgerir hann rétti sínum til heimvistar. Vistarstjóri fylgist með viðveru nemenda og gerir ráðstafanir ef tilefni gefst.
11. Reykingar eru stranglega bannaðar í heimvistarhúsnæði og á lóð heimavistarinnar samkvæmt landslögum.
12. Neysla og geymsla áfengis eða umbúða þess er stranglega bönnuð í húsakynnum heimavistar og á lóð hennar. Sama gildir um önnur vímuefni. Þá er nemanda óheimilt að dvelja á heimvistinni undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Skólinn stendur fyrir reglubundnum og fyrirbyggjandi aðgerðum svo sem utanaðkomandi eftirliti af hálfu lögreglu a.m.k. einu sinni á önn. Með umsókn sinni um dvöl á Heimavist FNV samþykkir umsækjandi að lögreglu með eða án leitarhunda sé heimilt að fara inn á herbergi hans án húsleitarheimildar til reglubundins eftirlits með fíkniefnum og öðrum ólögmætum varningi.
13. Skólameistari staðfestir reglur um starfsemi þvottahúss heimavistar.
14. Vistun gæludýra á heimavist er bönnuð. Þó getur heimavistarstjórn veitt undanþágu frá þessu ákvæði.
15. Brot á sérhverri grein þessara reglna varðar áminningu eða brottrekstur.
16. Vistarbúar skulu hafa reglur heimavistar uppi við á herbergjum sínum. Brjóti ósjálfráða nemandi þessar reglur ber skólanum að gera forráðmanni viðvart um eðli brotsins og viðurlög. Reglur þessar gilda frá og með útgáfudegi og um leið falla þá úr gildi reglur frá 1. mars 2004.

Sauðárkróki 8. mars 2005
Jón F. Hjartarson, skólameistari.

2.6.5.1 Reglur um eftirlits-/öryggismyndavélar á heimavist
1. Öryggis- / eftirlitsmyndavélar eru staðsettar á eftirtöldum stöðum: Ein vél er við aðalinngang heimvistarinnar og ein í anddyri, þá eru ein vél á milligangi neðstu hæðar og tvær á hverjum gangi Norður-Suðurálmu og ein á hverri hæð Austur-Vesturálmu. Þá er ein vél á rými sem kallast Kringla í suðurenda vistarinnar og ein á gangi undir matsal vistarinnar, alls 16 vélar.
2. Skólameistari og vistarstjóri eiga aðgang að herbergjum vistarbúa og eftirlitsmyndavélabúnaði á göngum og í anddyri hvenær sem er til eftirlits. Þeir skulu gæta tillitssemi og nærgætni.
Íbúar heimavistar eiga rétt á að fá vitneskju um
              1. hvaða upplýsingar um þá er eða hefur verið unnið með,
              2. tilgang öryggis-/eftirlitsmyndavéla,
              3. hver fær, hefur fengið eða mun fá upplýsingar um þá,
              4. hvaðan upplýsingarnar koma,
              5. hvaða öryggisráðstafanir eru viðhafðar. (Sbr. lög nr. 77/ 2000)
Ef íbúi heimavistar eða forráðamenn hans óska eftir frekari upplýsingum, veitir heimvistastjóri þær.
3. Tilgangur vöktunarinnar er að tryggja öryggi og næði íbúa vistarinnar og gesta þeirra. Fyrir skólanum vakir að verja nemendur fyrir ágangi innbrotsþjófa, koma í veg fyrir meiðsli og ryskingar og verja eignir nemenda og skólans. Skal það sérstaklega tekið fram að ekki er um hljóðupptökur að ræða.
4. Vöktun fer fram allan sólarhringinn á starfstíma skólans.
5. Upptökur af vöktun eru geymdar í 30 daga áður en þeim er eytt.
6. Viðeigandi merkingar um eftirlits-/öryggismyndavélar eru á útihurðum og í aðalanddyri heimavistar.
7. Reglur þessar öðlast þegar gildi.

Sauðárkróki 11. mars 2005
Jón F. Hjartarson, skólameistari.

2.6.5.2 Reglur þvottahúss heimavistar
1. Þar sem litið er á heimavist Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og útibú hennar sem heimili nemenda sem þar búa, þá er starfrækt þar þvottahús sem nemendur geta nýtt sér.
2. Þvottahússtjóri fer með stjórn þvottahússins og sér hann um allan þvott sem berst þangað. Heimavistarstjórn er heimilt að setja sérreglur um þvottahúsið ef svo ber undir.
3. Það gilda ákveðnar reglur um þvottahúsið eins og annað á heimavist.
4. Nemendum er úthlutað ákveðnum þvottadögum 4 daga vikunnar og raðast þeir niður á herbergin.
5. Merkja skal allan þvott vel með þvottanúmeri sem hver nemandi fær þegar hann kemur með þvott sinn í þvottahús.
6. Það er mjög mikilvægt að nemendur haldi sömu þvottadögum sem þeim hefur verið úthlutað
í upphafi annar, vegna númerakerfis í þvottahúsi.
7. Ómerktur þvottur er ávísun á vandræði í þvottahúsinu, bæði fyrir þvottahússtjóra og nemanda. Engin ábyrgð er tekin á ómerktum þvotti eða þvotti sem er illa merktur svo að ekki skilst.
8. Allir sokkar og öll nærföt skulu vera í þvottaskjóðum. Æskilegt er að ljós og dökkur þvottur sé ekki settur saman. Enginn handþvottur þveginn. Þvottur ekki strokinn.
9. Þar sem ekki er hægt að geyma óskilaþvott frá vetri til vetrar er hann gefinn til Rauða Kross Íslands eftir ákveðinn tíma.
10. Ef þvottur skemmist eða augljóslega týnist í þvottahúsi, meta skólameistari og forráðamenn skólans hverju sinni hvort hann skal bættur og með hvaða hætti.
11. Þar sem þvotturinn í þvottahúsinu er einkaeign hvers nemanda, þá er það aðeins þvottahússtjóri sem má afhenda hann.
12. Góð samskipti þvottahússtjóra og vistarbúa er ávísun á vel þveginn þvott.
13. Vistarbúar skulu hafa reglur þvottahúss uppi við á herbergjum sínum.
14. Þvottahúsið er ætíð opið á morgnana frá kl. 8.00 – 13.00 og ber nemendum að sækja þvott sinn á þeim tíma. Þvottahússtjóra ber ekki skylda til að afhenda þvottinn hreinan samdægurs á þvottadegi nemenda.
15. Nánari tilkynningar frá þvottahússtjóra eru hengdar upp á vistinni.

Sauðárkróki 1. mars 2003
Jón F. Hjartarson, skólameistari

2.6.6 Skólasóknarreglur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

Nemendur skulu sækja allar kennslustundir samkvæmt stundatöflu sinni og koma stundvíslega til kennslu.


2.6.6.1  Eftirfarandi reglur gilda um skráningu fjarvista, viðurlög við þeim og einkunn fyrir skólasókn:

  1. Ef nemandi er fjarverandi úr kennslustund eða mætir eftir að fjórðungur kennslustundar er liðinn skrifar kennari F í kladda. Komi nemandi of seint, en þó áður en fjórðungur kennslustundar er liðinn, skrifar kennari S. Sambærilegar reglur gilda yfirgefi nemandi kennslustund áður en henni er lokið. Tvö S jafngilda einu F.
  2. Ef annað er ekki tekið sérstaklega fram í kennsluáætlun jafngildir það úrsögn úr áfanga ef fjarvistir í honum eru fleiri en sem svarar kennslu í eina og hálfa viku.
  3. Veikindi og önnur forföll skal tilkynna samdægurs. Nemanda eða forráðamanni  ber að tilkynna forföll á milli kl. 07:50 og 09:00 að morgni hvers veikindadags. Tekið er við tilkynningum um forföll í síma 455-8000. Sé nemandi yngri en 18 ára skulu forföll staðfest af forráðamanni. Skólameistari getur krafist þess að veikindi séu staðfest af lækni.
  4. Ef nemandi gerir grein fyrir öllum veikindaforföllum í samræmi við 3. grein hér að ofan þá fer skólasóknareinkunn viðkomandi ekki niður fyrir 7, sé ekki um aðrar óútskýrðar fjarvistir að ræða (veikindi eru dregin frá upp að 93%).
  5. Einkunn er gefin fyrir skólasókn og birtist hún í námsferli nemenda og á brautskráningarskírteini. Skólasóknaeinkunn ræðst af skólasókn samkvæmt meðfylgjandi töflu. Nemandi í fullu námi (24 kennslustundum eða meira) sem nær 9 eða 10 í skólasóknareinkunn fær 1 einingu sem er færð inn á námsferil hans í lok annar. Nemandi getur fengið að hámarki 8 einingar fyrir skólasókn.


Tafla yfir skólasóknareinkunn:
Frá 98% upp í 100% gefur einkunnina 10.
Frá 96% upp að 98% gefur einkunnina 9.
Frá 94% upp að 96% gefur einkunnina 8.
Frá 92% upp að 94% gefur einkunnina 7.
Frá 90% upp að 92% gefur einkunnina 6.
Frá 88% upp að 90% gefur einkunnina 5.
Frá 86% upp að 88% gefur einkunnina 4.
Frá 84% upp að 86% gefur einkunnina 3.
Frá 82% upp að 84% gefur einkunnina 2.
Skólasókn undir 82% gefur einkunnina 1.

Sé skólasóknareinkunn lægri en 5 á nemandi ekki vísa skólavist á næstu önn.

2.6.6.2  Reglur um niðurfellingu fjarvista af öðrum ástæðum en veikindum
Skólaráð getur heimilað að fjarvistir séu felldar niður að fullu eða nokkru leyti þegar nemendur hafa verið fjarverandi í eftirfarandi tilvikum:

  1. Vegna námsferða á vegum skólans (skipulagðar af FNV).
  2. Vegna tiltekinna starfa í stjórn nemendafélags FNV að fengnu leyfi skólastjórnenda.
  3. Vegna keppnisferða á vegum skólans.
  4. Vegna vinnu við undirbúning og framkvæmd stórviðburða á vegum nemendafélags FNV að undanfengnu leyfi skólastjórnenda.
  5. Vegna þátttöku í eða undirbúnings fyrir íþróttakeppni á vegum landsliðs eða íþróttafélags. Liggja þarf fyrir staðfesting á slíkri þátttöku frá viðkomandi sérsambandi eða íþróttafélagi.
  6. Vegna ófærðar eða annarra óviðráðanlegra tilvika, enda geti nemandi skýrt og staðfest þá töf sem hann varð fyrir.
  7. Vegna útfarar nákomins ættingja eða vinar.
  8. Vegna veikinda barns sem nemandi á eða hefur á framfæri.
  9. Ferð til læknis eða tannlæknis staðfest af viðkomandi lækni. Læknisferðir utan Sauðárkróks skulu sérstaklega tilgreindar og þá þann tíma sem það tekur.
  10. Þegar rökstudd umsókn um leyfi vegna brýnna erinda liggur fyrir frá nemanda eða forráðamönnum hans.


2.6.6.3  Reglur um frávik frá skólasóknarreglu
Nemendur geta sótt um frávik frá skólasóknarreglu í byrjun annar. Umsókn þarf að vera rökstudd. Um frávik frá skólasóknarreglu gildir:

  1. Að jafnaði skal við það miðað að nemandi, sem fær frávik frá skólasóknarreglu, sé orðinn 20 ára eða eldri, hafi stundað nám með góðum árangri og tilgreini í umsókn sinni ástæður þess að hann geti ekki haldið áfram námi án þess að sleppa einhverjum kennslustundum.
  2. Nemendur sem hafa fengið samþykkt frávik frá skólasóknarreglu geta þurft að mæta í allar kennslustundir í sumum áföngum ( einkum í verklegum og próflausum ) sem ekki er hægt að ljúka nema með reglulegri tímasókn.
  3. Skólinn gerir þá kröfu að nemandi með frávik frá skólasóknarreglu geti sótt allverulegan hluta kennslustunda. Nemandinn á ekki rétt á kennslu eða leiðsögn utan kennslustunda umfram aðra nemendur.
  4. Nemendur geta ekki stundað nám í fornámsáföngum með frávik frá skólasóknarreglu.
  5. Hafi nemandi fallið í einhverjum áföngum á síðustu önn sinni í skóla getur hann ekki fengið frávik frá skólasóknarreglu í fleiri einingum en hann lauk með fullnægjandi árangri á þeirri önn.
  6. Endurnýja þarf umsókn um frávik frá skólasóknarreglu í upphafi hverrar annar. Það gerir nemandi með því að fylla út eyðublað sem fæst á skrifstofu skólans. Umsóknin er afgreidd í samráði við fagstjóra og kennara í lok annarrar kennsluviku.
  7. Þess er vænst að nemendur í fullu námi hafi samráð við skólastjórnendur eða námsráðgjafa áður en umsókn þeirra um frávik frá skólasóknarreglu er afgreidd.
  8. Nemandi með frávik frá skólasóknarreglu fær hvorki skólasóknareinkunn né einingar fyrir skólasókn (skráð er U í stað einkunnar í námsferil).

2.6.6.4  Hámarksfjöldi fjarvista í áföngum:

Í einnar einingar áfanga: Tvö skipti fjarverandi eða 4 kennslustundir(4x40 mín) = 8 stig (87%).
Í tveggja eininga áfanga sem kenndur er 4 kennslustundir á viku: Þrjú skipti fjarverandi eða 6 kennslustundir (6x40 mín) = 12 stig (90%).
Í tveggja eininga áfanga sem kenndur er 6 kennslustundir á viku: Fjögur skipti fjarverandi eða 8 kennslustundir (8x40 mín) = 16 stig (91%).
Í þriggja eininga áfanga: Fjögur skipti fjarverandi eða 8 kennslustundir (8x40 mín) = 16 stig (91%).
Komi nemandi tvisvar sinnum of seint jafngildir það einni fjarvist eða 2 stigum.

Skólinn minnir nemendur og /eða forráðamenn þeirra á að fylgjast vel með í Innu en þar koma allar skráningar fram á mætingum nemenda.


Sauðárkróki 19. desember 2011
Skólameistari.

2.6.7 Reglur um námsmat vor 2012

  1. Önninni er skipt í tvo hluta þar sem vægi hvors hluta um sig getur verið á bilinu 30-60% af áfanganum og skal námsmat fara fram í hvorum hluta um sig.
  2. Námsmati í fyrri hluta skal lokið með símati sem getur samanstaðið af verkefnum, tímasókn og tímaprófum sem dreift er yfir fyrri hluta annar. Ekki er gert ráð fyrir prófdögum í lok fyrri hluta annar.
  3. Námsmati í seinni hluta skal lokið með símati og/eða lokaprófi sem nær til námsefnis seinni hluta áfangans.
  4. Einkunn á miðönn er lokaeinkunn úr skilgreindum hluta námsefnis eins og fram kemur í námsáætlun áfangans. Ekki er hægt að endurtaka þann hluta námsefnis.
  5. Einkunn á miðönn er aldrei falleinkunn, nemendur geta haldið áfram í áfanganum þó að þeir nái ekki 4,5 úr námsefni fyrri hluta.
  6. Sé vægi prófs 40% eða meira af heildareinkunn í áfanga þarf nemandi að fá prófseinkunn að lágmarki 4,5 til að standast áfangann. Sé prófseinkunn lægri en 4,5 gildir sú einkunn sem lokaeinkunn í áfanganum.
  7. Sé vægi prófs minna en 40% af heildareinkunn í áfanga gildir prófseinkunn sem hlutfall af heildareinkunn án skilyrða um lágmarkseinkunn sem getið er í lið 6.
  8. Í fyrstu kennslustund eftir að niðurstöður miðannarmats liggja fyrir skal kennari ræða einslega við hvern nemanda um stöðu hans.
  9. Í lok annar er lagt fyrir 90 mínútna lokapróf fyrir bæði dagskólanemendur og fjarnemendur, enda sé ekki um próflausan símatsáfanga að ræða.
  10. Aðeins nemendur með greiningu geta fengið lengri próftíma. Þeir þurfa að sækja sérstaklega um lengri próftíma hjá námsráðgjafa.
  11. Þessar reglur skal kennari kynna nemendum sínum í upphafi annar og reglur um námsmat sem gilda um áfangann.

Skipulag þetta gildir frá upphafi vorannar 2012.

Sauðárkróki 22.12.2011
Skólameistari
 
2.6.8 Almennar prófreglur
1. Nemendur skulu mæta tímanlega til prófs. Á göngum Bóknámshúss er tilkynnt á töflum hvar próf fara fram.
2. Próftími er 90 mín.
3. Nemendur mega ekki yfirgefa prófstofu fyrr en 40 mín. eru liðnar af próftímanum.
4. Geti nemandi ekki mætt til prófs vegna veikinda, skal hann tilkynna það áður en próf hefst og skila læknisvottorði eins fljótt og mögulegt er.
5. Nemendum er óheimilt að hafa töskur með sér í próf, sama gildir um síma, iPod og önnur slík tæki, líka þó slökkt sé á þeim. Yfirsetumenn munu skoða í pennaveskim og fletta leyfilegum hjálpargögnum.
6. Verði nemandi uppvís að því að hafa rangt við í prófi, eða bera með sér óleyfileg gögn, varðar það ógildingu prófs.

2.6.9 Frávik frá prófreglum

Fatlaðir og langveikir nemendur, nemendur með lesröskun (lestrar- og skriftarörðugleika) og /eða aðra staðfesta skynjunarörðugleika geta sótt um frávik frá hefðbundnu námsmati. Um er m.a. að ræða sérstaka samsetningu prófa, lengri próftíma, sérhönnuð próf, notkun hjálpargagna, aðstoð í prófum, munnleg próf o.fl. Nemandi skal sækja um slík frávik til námsráðgjafa sem leggur umsóknina fyrir prófstjóra.

2.6.10 Um birtingu einkunna
Óheimilt er að birta einkunnir einstakra nemenda undir nafni, kennitölu eða öðru skráningarauðkenni sem hægt er að persónugreina nema fyrir liggi skrifleg heimild viðkomandi nemenda.

2.6.11 Varðveisla prófúrlausna
Skólar skulu varðveita allar prófúrlausnir í eitt ár. Að þeim tíma liðnum ber skólameistari ábyrgð á að eyða öllum skriflegum prófúrlausnum. Próftaki getur fengið að sjá prófúrlausn sína ef hann leggur fram beiðni um það innan árs frá því að niðurstöður prófs voru birtar. Einnig getur hann fengið ljósrit af prófúrlausn sinni ef hann óskar þess gegn greiðslu gjalds skv. gjaldskrá skólans. Þeir sem þess óska geta fengið afhent eintök af prófverkefnum skólans - eftir að próf í viðkomandi grein hefur verið þreytt.

2.6.12 Reglur um ferðalög nemenda á vegum skólans
1. Fararstjórn fyrir sérhverja ferð sem nemendur fara í nafni skólans skal skipuð tveimur nemendum og tveimur kennurum. Fararstjórn ákvarðar hvenær hætt skal við ferð vegna agabrota og tímasetur farartíma. Rísi ágreiningur skal leitast við að jafna hann.
2. Fararstjórn skal halda fund með öllum þeim sem í skólaferðalag fara og kynna þær reglur sem hún setur og þau skilyrði sem allir verða að uppfylla í ferðinni. Allir nemendur verða þess utan að uppfylla þær reglur sem gestgjafar skólans kunna að setja og skal fararstjórn leita eftir upplýsingum um þær áður en ferð er farin.
3. Nemendur skulu hafa næði til svefns á þeim tíma sem fararstjórn ákveður.
4. Nemendur skulu skipa sérstaka siðanefnd úr sínum hópi og skulu nemendur hlíta fyrirmælum hennar í öllu sem varðar framkomu og fyrirkomulag ferðar. Siðanefnd skal vera fararstjórn til aðstoðar og vera milligönguaðili milli fararstjórnar og aðila sem brotlegir kunna að vera.
5. Við móttöku á nemendum frá öðrum skólum skulu þessar reglur gilda eins og þær geta við átt.
6. Reglur þessar gilda frá og með 1. janúar 1991 þar til annað verður ákveðið.

2.6.13 Reglur um samkomuhald á vegum skólans
1. Öll varsla og meðferð áfengis og annarra vímuefna er óheimil.
2. Samkomugestum sem eru undir áhrifum áfengis skal vísað af samkomunni eftir að nafn viðkomandi hefur verið skráð.
3. Leiki grunur á meðferð fíkniefna skal það tilkynnt til lögreglu án tafar.
4. Áfengi sem tekið er af samkomugestum skal afhent eftirlitsmönnum og nafn handhafa þess skráð. Geta skal þess hvers kyns áfengi er hellt niður og hve miklu.
5. Á samkomum á vegum FNV skulu vera a.m.k. tveir eftirlitsmenn úr hópi starfsmanna skólans sem skólameistari tilnefnir. Þeim er ætlað að fylgjast með framkvæmd samkomuhaldsins og skila skýrslu til skólameistara þar að lútandi.
6. Í skýrslu eftirlitsmanna til skólameistara skal eftirfarandi tilgreint eftir því sem við verður komið:
a. Fjöldi samkomugesta.
b. Framkvæmd dyravörslu.
c. Nöfn þeirra sem brjóta reglur.
d. Nöfn annarra sem dyraverðir hafa afskipti af.
e. Stutt lýsing á samkomuhaldinu.
7. Þegar dansleikir eru haldnir skal nemendum sem yfirgefa samkomustaðinn ekki hleypt inn aftur, nema með sérstöku leyfi dyravarða eða eftirlitsmanna.
8. Gestir á samkomum FNV eru á ábyrgð gestgjafa.
9. Gerist nemandi brotlegur við þessar reglur getur það varðað brottrekstur úr skóla.

Sauðárkróki 6. nóvember 2002.
Skólameistari

2.6.14 Samþykkt Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Lögreglustjórans á Sauðárkróki um fyrirkomulag á skemmtunum á vegum skólans
1. Skemmtunin er haldin á ábyrgð og undir umsjón skólameistara, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og aðeins ætluð fyrir nemendur, kennara og gesti. Skólameistari getur tilgreint umsjónarmann yfir skemmtuninni og skal umsjónarmaður vera á skemmtuninni þar til henni lýkur.
2. Skemmtunin er einungis auglýst í viðkomandi skóla.
3. Aðgöngumiðar eru eingöngu seldir skráðum nemendum skólans, en leyfilegt er að bjóða einum eða tveimur gestum. Sala aðgöngumiða fer einungis fram í FNV. Listi yfir gesti skal vera tilbúinn og kominn í hendur skólameistara fyrir kl. 16:00 sama dag og dansleikurinn er haldinn. Á listanum komi fram í hvers boði gesturinn er, nafn gestsins og kennitala.
4. Gestalisti skal liggja frammi við inngang.
5. Engar vínveitingar eða meðferð áfengis fari fram á skemmtuninni.
6. Haldið verði uppi fullnægjandi gæslu á skemmtuninni að mati lögreglu.
7. Lögreglan heldur uppi eftirliti fyrir utan skemmtistaðinn.
8. Fólk undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna fær ekki aðgang að skólaskemmtunum og vímuefnanotkun ógildir miðann.
9. Skemmtanaleyfi er að jafnaði ekki veitt lengur en til kl. 03:00, þó er heimilt að veita leyfi til kl. 04:00.
10. Nemendum og gestum er heimilt að yfirgefa samkomu að loknu borðhaldi og koma aftur á tímabilinu kl. 00:00 til kl. 00:30.
11. Gæslufólk á skólasamkomum skal vera fullra 18 ára.
12. Ákvörðun um reykingar á skólasamkomum er í höndum skólameistara.
13. Þá skal einnig vakin athygli á því að leyfi til vínveitinga er ávallt bundið við 20 ára aldur, en óski skólar eftir slíku leyfi gilda um það aðrar reglur sem ekki verða tilgreindar hér.
14. Verði ástand inni á skemmtun á vegum skóla óviðunandi, að mati lögreglu, mun forráðamanni skóla verða kunngert um slíkt og mun það hafa áhrif á síðari leyfi til handa viðkomandi skóla.
15. Umsjón með útgáfu leyfanna er í höndum lögreglu og þarf umsókn að berast með þriggja daga fyrirvara.
16. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra tilnefni tengilið vegna skemmtanaleyfa.
17. Skemmtanaleyfi verða tímanlega send viðkomandi skóla.

Sauðárkróki 4. mars 2004

 

F.h. skólans F. h. Lögreglustjóraembættisins
Jón F. Hjartarson, skólameistari Ríkarður Másson, lögreglustjóri
____________________________ ____________________________
Vilhjálmur Árnason, forseti NFNV  
____________________________