| Meistaranám - almennt nám | (MN) |
| Sjúkraliðabraut | (SJ) |
| Starfsbraut | (ST4) |
MEISTARANÁM (MN), almennt nám
Markmið meistaranáms er að veita fræðslu og þjálfun þeim sem lokið hafa sveinsprófi svo að þeir geti staðið fyrir sjálfstæðum rekstri í iðngrein sinni, stjórnað verkum og kennt nýliðum vinnubrögð, öryggisreglur og iðnfræði. Námið er eðlilegt framhald iðnnáms. Möguleikar eru á framhaldsnámi í iðnfræði og tæknifræði við Tækniskóla Íslands. Inntökuskilyrði eru fullgilt sveinspróf og eins árs vinna undir stjórn meistara að því loknu. Þeir sem luku sveinsprófi 1. janúar 1989 eða síðar skulu stunda nám við meistaraskóla með fullnægjandi árangri til þess að fá útgefið meistarabréf.
Þeir námsáfangar sem eru sameiginlegir öllu meistaranámi eru tilgreindir hér og sá fjöldi viðbótareininga sem nemendur geta valið eða bundnar eru viðkomandi iðngrein.
|
Almennt bóknám
|
||
|
Kjarni 10 einingar
|
||
|
Málnotkun
|
ÍSL 242, 252
|
4 ein.
|
|
Upplýsingatækni
|
UTN 103
|
3 ein.
|
|
Viðskiptastærðfræði
|
STÆ 243
|
3 ein.
|
|
Val iðngreina
|
0-10 ein.
|
|
|
Stjórnunar- og rekstrarnám 16-23 ein.
|
||
|
Kjarni 12 ein.
|
||
| Stjórnun | MST 104 | 4 ein. |
| Kennsla/þjálfun | MKE 102 | 2 ein. |
| Rekstrarumhverfi | MRU 102 | 2 ein. |
|
Bókhald og skjalavarsla
|
MBS 101
|
1 ein.
|
|
Reikningsskil
|
MRS 103
|
3 ein.
|
| Val | ||
|
Val nemenda 4
|
4 ein
|
|
|
Val iðngreina 0-7 ein.
|
0-7 ein.
|
Alls 25 - 42 einingar
Nánari upplýsingar um námsgreinar og námsáfanga einstakara iðngreina eru í sérstakri námskrá fyrir meistaranám.
SJÚKRALIÐABRAUT (SJ) 120 ein.
Sjúkraliðabraut er ætlað að búa nemendur undir sjúkraliðastörf. Til viðbótar námi á brautinni verða nemendur að vinna fjóra mánuði á sjúkrastofnun og geta að því loknu sótt um löggildingu á starfsheiti til heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis. Meðalnámstími á sjúkraliðabraut er 6 annir í skóla auk 4 mánaða starfsþjálfunar.
Bóklegar greinar 44 ein.
|
Almennar greinar 25 ein.
|
|
|
|
Íslenska
|
ÍSL 102,202
|
4 ein.
|
|
Erlend mál
|
DAN 102, ENS 102 + 4 ein.
|
8 ein.
|
|
Stærðfræði
|
STÆ 102 + 2 ein.
|
4 ein.
|
|
Lífsleikni
|
LKN 103 | 3 ein. |
|
Íþróttir
|
ÍÞR 101, 111, 201, 211 + 2 ein.
|
6 ein.
|
|
|
||
|
Sérgreinar 64 ein.
|
||
|
Félagsfræði
|
FÉL 103
|
3 ein.
|
|
Heilbrigðisfræði
|
HBF 103
|
3 ein.
|
|
Hjúkrunarfræði bókleg
|
HJÚ 103, 203, 303, 403, 503
|
15 ein.
|
| Hjúkrunarfræði verkleg | HJV 103 | 3 ein. |
| Líffæra- og lífeðlisfræði | LOL 103, 203 | 6 ein. |
| Líkamsbeiting | LÍB 101 | 1 ein. |
| Lyfjafræði | LYF 103 | 3 ein. |
| Náttúrufræði | NÁT 103, 123 | 6 ein. |
| Næringarfræði | NÆR 103 | 3 ein. |
| Samskipti | SAM 103 | 3 ein. |
| Sálfræði |
SÁL 103
|
3 ein. |
| Siðfræði | SIÐ 102 | 2 ein. |
| Sjúkdómafræði | SJÚ 103, 203 | 6 ein. |
| Skyndihjálp | SKY 101 | 1 ein. |
| Sýklafræði | SÝK 103 | 3 ein. |
| Upplýsingatækni | UTN 103 | 3 ein. |
STARFSBRAUT (ST4)
Starfsbraut er ætlað að búa nemendur undir þátttöku í þjóðfélaginu á eigin forsendum. Leitað er leiða til að finna styrkleika og áhugasvið hvers og eins, með það að markmiði að styðja viðkomandi til aukins þroska, frekara náms og starfshæfni. Náminu er ætlað að efla sjálfstraust, sjálfstæði og lífsgleði nemendanna og hvetur þá og styður í viðfangsefnum sínum á heimili, starfi og í tómstundum. Starfsþjálfun er hluti af náminu og fer að mestu leyti fram á vinnustöðum. Þetta nám gefur ekki starfsréttindi, hins vegar býr það nemendur undir þátttöku á vinnumarkaðinum og auðveldar þeim að fá vinnu við hæfi. Námstími er allt að 4 árum og fer eftir óskum og þörfum hvers nemanda.