Tölvureglur FNV
- Láttu ekki undir
nokkrum kringumstæðum aðra fá notandanafn og lykilorð þitt. Gleymdu því
ekki að þú ert ábyrgur fyrir bæði notendanafni og netfangi sem þér var
afhent og öllu sem unnið er á þínu svæði.
- Þeir nemendur
sem týna eða gleyma lykilorðinu sínu þurfa að greiða kr. 500 til að fá
úthlutað lykilorðinu að nýju.
- Allir
nemendur geta flett upp stundatöflu á sameiginlegu skólakerfi
framhaldsskólanna (Innu). Til þess þarf að slá inn skólanúmer og
lykilorð .
- Heimasvæði
þitt á móðurtölvunni er H-drif. Enginn hefur aðgang að svæðin þínu nema
þú og umsjónarmaður tölvunetsins. Hver notandi hefur 10 Mb til afnota.
Ef þú vilt stækka svæðið þitt getur þú keypt viðbótardiskrými á
skrifstofu.
- Sett hefur
verið upp öflug vél sem sameinar prentun, ljósritun og skönnun. Nánari
upplýsingar um prentun og uppsetningu prentara, er að finna á heimasíðu
skólans undir liðnum Prentun.
- Auk aðgangs
að staðarneti hefur þú aðgang að Internetinu. Allir mega „gramsa“ að
vild en innan velsæmismarka og á þeim tíma sem leyfilegur er.
- Allir
nemendur hafa aðgang að vefpósti á
Internetinu. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans undir vefpóstur.
- Munið að
ganga ávallt vel um tölvuverið. Mat og drykki má ekki hafa meðferðis. Skráið ykkur út úr ("log of") tölvunum að vinnu lokinni og gangið frá á borðinu.
- Á stofutöflum
kemur fram hvenær verið er að kenna í stofunum. Þú hefur aðgang að
tölvustofum þegar ekki er verið að kenna í stofunum.
- Brot á
umgengnisreglum getur leitt til þess að aðgangur að staðarneti skólans
verði tímabundið eða alveg lokað. Litið er á tilraun til að brjótast inn
á netkerfi skólans eins og hvert annað innbrot og getur leitt til
brottvísunar úr skóla.