Nemendur sem óska eftir að taka próf utan FNV bera sjálfir ábyrgð á að finna og útvega sér viðeigandi prófstað.
Þegar samþykki fyrir próftöku liggur fyrir ber nemendum að upplýsa FNV um hvar prófið verður tekið.
Nemendur þurfa sjálfir að kynna sér þau skilyrði sem gilda á viðkomandi prófstað, þar á meðal:
- Gjald vegna próftöku
- Hvort próftímar séu þeir sömu og í FNV
- Sérreglur eða önnur skilyrði sem kunna að gilda á prófstaðnum.
Próftaka erlendis
Nemendum sem búsettir eru erlendis er bent á að kanna möguleika á próftöku hjá seindiráðum Íslands, ræðismönnum eða menntastofnunum.
Samstarfsaðilar
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er í samstarfi við eftirfarandi aðila um aðstöðu til próftöku:
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
Netfang: mss@mss.is
Þekkingarnet Þingeyinga
Netfang: hac@hac.is
Símey Akureyri
Netfang: simey@simey.is
Símenntun á Vesturlandi
Netfang: simenntun@simenntun.is