Dreifnám við FNV gerir nemendum kleift að stunda nám frá Blönduósi, Hólmavík eða Hvammstanga. Kennari kennir frá kennslustofu á Sauðárkróki en nemendur sækja kennsluna í kennslustofu á einum af dreifnámsstöðum skólans.
Markmið dreifnáms er að nemendur geti lokið almennum greinum iðnbrauta og kjarnagreinum stúdentsbrauta nær heimabyggð, einkum áföngum á 1. og 2. hæfniþrepi.
Nemendur í dreifnámi eru hluti af skólasamfélagi FNV og taka þátt í helstu viðburðum og ferðum á vegum skólans.
Á haustönn 2026 fer kennsla í dreifnámi eingöngu fram á Hólmavík. Umsjón með dreifnáminu hefur Hrafnhildur Fjeldsted.
Dagleg starfsemi
Nemendur í dreifnámi eru hluti af nemendahópi FNV og fylgja kennslu frá Sauðárkróki í gegnum fjarfundabúnað. Umsjónarmenn á dreifnámsstöðum halda utan um daglega starfsemi og aðstoða nemendur eftir þörfum.
Moodle er notað sem námsumhverfi þar sem kennarar birta námsefni og verkefni og nemendur skila verkefnum og hluta prófa. Próftaka fer fram á dreifnámsstöðum.
Staðnám á Sauðárkróki
Nemendur í dreifnámi mæta í staðnám á Sauðárkróki í samtals 10 daga á önn. Staðnámið gefur nemendum tækifæri til að hitta kennara og samnemendur, taka þátt í hefðbundnum kennslustundum og fá aðstoð við verkefnavinnu.
Staðnámið er jafnframt mikilvægur hluti af tengingu dreifnema við skólasamfélagið og gefur þeim tækifæri til að taka þátt í félagslífi og öðrum viðburðum skólans.
Á staðnámsdögum hefur verið boðið upp á gistingu og fæði á heimavist FNV og nemendur ferðast með strætó til og frá Sauðárkróki.
Sauðárkróki 01.08.2024