Innritun í fjarnám við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra vorönn 2012 lýkur föstudaginn 6. janúar
Innritun fyrir fjarnám fer aðeins fram rafrænt. Smellt er á flipann „Umsókn og áfangar í boði“ hér til hliðar og þá birtist gluggi þar sem velja má áfanga sem nemandi vill innrita sig í.
Fjarnám er góður kostur fyrir þá sem ekki geta stundað nám á hefðbundinn hátt. Skilyrði er að hafa aðgang að tölvu, því námið fer að mestu fram með tölvusamskiptum við kennara og gegnum samskiptaumhverfið Moodle.
Nemandinn fær tölvupóstfang og aðgang að kennsluumhverfinu Moodle og getur þannig verið í samskiptum við kennara sína og umsjónarmann.
Námstími fjarkennslunnar er sá sami og hjá nemendum dagskóla, nema hefst viku síðar. Í flestum áföngum lýkur náminu með prófi, sem tekið er innan almenns prófatíma skólans.
Nemendur geta samið um að taka próf í heimabyggð sinni, oftast þeim grunnskóla, framhaldsskóla eða fjarnámsstöð sem næst er. Próf eru þá send á prófstaði og lausnir sendar til baka til kennara, sem fara yfir þær og gefa einkunnir.
Námsefni og kröfur í fjarkennslu FNV eru þær sömu og í dagskóla og því nota fjarnemendur sömu kennslubækur og gögn og aðrir nemendur skólans.
Sjá bókalista á vefsíðu skólans.
UPPHAF KENNSLU: Nemendur fá send aðgangs- og lykilorð að Innu en skrá sig sjálfir á Moodle skv. leiðbeiningum sem sendar verða. Viðkomandi kennari sendir í tölvupósti aðgang að sínum áfanga í námsumhverfinu Moodle. Nemendur skrá sig sjálfir inn á Moodle og nota svo aðgangsorðið frá kennaranum til að komast inn á áfangana sína.
Mikilvægt er að nemendur útvegi sér bækurnar tímanlega. Sjá bókalista hér til hliðar.
NÁMSFYRIRKOMULAG:
Smellið á Námsfyrirkomulag ef þið viljið afla ykkur ítarlegri upplýsinga um fjarnámið.
Námið er fyrst og fremst hugsað sem sjálfsnám undir handleiðslu kennara. Það kefst mikils aga og skipulagningar af hálfu nemenda og kennara.
Þegar smellt er á suma tenglana hér til hliðar opnast skjöl í pdf-sniði en til að geta lesið pdf-skjöl þarftu Acrobat Reader forritið sem hægt er að nálgast hér: