ENSK1EG05 - Enska 2 á starfsbraut

Enska 2 á starfsbraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Meginmarkmið áfangans er að auka grundvallarfærni nemenda í tungumálinu og lögð sérstök áhersla á munnlega tjáningu og að nemendur tileinki sér hagnýtan orðaforða til daglegra samskipta. Einnig er mikil áhersla lögð á námstækni og að nemendur tileinki sér að notast við orðabækur og önnur hjálpargögn, sér í lagi stafræn. Námsefni verður útbúið með það í huga að það styrki nemendur og hvetji til sjálfstæðra vinnubragða, en sérstök áhersla lögð á skapandi verkefni ýmiskonar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • algengum orðum og orðasamböndum í töluðu og rituðu máli
  • réttri stafsetningu algengra orða sem koma fyrir í námsefni
  • hagnýtri notkun hinna ýmsu stafrænu hjálpartækja sem í boði eru

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • vinna með orðaforða í tengslum við hlustunarefni
  • taka þátt í samskiptum í kennslustofu
  • tjá sig um afmarkað efni í viðfangsefnum sem unnið er með, t.d. í endursögnum eða eigin frásögnum
  • beita viðeigandi hjálpargögnum við úrvinnslu ýmiskonar verkefna

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skilja aðalatriði í daglegu máli, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki
  • skrifað og/eða tjáð sig um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
  • miðla eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu, vonum og væntingum
  • hagnýta þann orðaforða sem áfanginn byggir á í ræðu og riti
Nánari upplýsingar á námskrá.is