Samkvæmt 9.gr. laga um framhaldsskóla skal halda skólafund a.m.k. einu sinni á skólaári.

Við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra er haldinn skólafundur einu sinni á ári. Þar koma að allir starfsmenn skólans og allir nemendur. Á skólafundinum er rætt um málefni er varða skólann og nemendur. Skólameistari boðar til fundar og leggur fram dagskrá en efni fundarins geta komið frá nemendum og/eða starfsmönnum.