MLSU2MI03 - Málmsuða-MIG-MAG

MIG-MAG suða

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: MLSU1RS03 og MLSU1LS03
Nemendur læri MIG/MAG suðu í efnisþykktum 2-6mm. Nemendur læri grunnfærni í suðuaðferðum og þeir þekki muninn á suðuaðferðum kostum þeirra og göllum. Þeir geti soðið stál, ryðfrítt stál og ál.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • suðubúnaði fyrir mig/mag suður
  • gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suður
  • hlutverki gassins og rétt streymi þess
  • öryggismálum á borð við hættu vegna bruna, geislunar, reyks, ósonmyndunar og mikilvægi hlífðarfatnaðar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • stilla suðutæki eftir því hvað skal sjóða
  • setja í rúlluvír og velja spíssa eftir suðuvírum
  • stilla gasflæði
  • stilla upp suðustykkjum fyrir suðu
  • fara eftir öryggisreglum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • stilla suðutæki fyrir mismunandi efnisþykktir með mismunandi suðuraufum
  • velja vír fyrir mismunandi efni
  • mæla og stillt gasflæði með mæli
  • gegnumsjóða 3mm stálplötu í suðustöðum pa-bw og pg-fw
  • meta algengustu suðugalla og greina orsakir þeirra
  • fylgja reglum um öryggismál
Nánari upplýsingar á námskrá.is