VGRT2GC04 - Verktækni grunnnáms C

Verktækni grunnnáms rafiðna C

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: VGRT2GB03
Nemendur læra að beita rásahermiforritum til að teikna og prófa einfaldar rafeindarásir. Nemendur gera jafnframt allar mælingar í slíkum forritum, smíða rás, prentplötu og setja rásirnar saman. Síðan staðfesta þeir virkni rásarinnar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • virkni rásahermiforrita.
  • virkni helstu íhluta.
  • hvernig kopar prentrása er.
  • forritum til að teikna prentrásir.
  • forritum sem teikna rafeindarásir.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • vinna með og prófa rásir í rásahermum.
  • snúa skematískum teikningum yfir á prent.
  • mæla og prófa rásir bæði í rásahermi og raunrás.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • teikna rafeindarás í rásahermi.
  • láta rásina virka í rásahermi.
  • mæla spennur, strauma og viðnám í rásahermi.
  • hanna prent út frá rásateikningu.
  • smíða rás með etching aðferð.
  • prófa og staðfesta virkni í raunrás.
Nánari upplýsingar á námskrá.is