Gettu betur lið FNV keppir við lið starfsfólks
Gettu betur lið FNV keppir við lið starfsfólks

FNV mætir FG í 16-liða úrslitum Gettu betur og fer viðureignin fram í kvöld, 16. janúar, klukkan 20:35 í beinni útsendingu á Rás 2.

Eftir góðan árangur í fyrstu umferð er ásæðulaust að breyta einhverju við undirbúninginn og því keppti Gettu betur liðið aftur við lið starfsfólks að morgni keppnisdags. Starfsfólkið mætti með alveg nýtt lið eftir að hafa tapað síðustu keppni en mátti engu að síður aftur játa sig sigrað 31-13. Þau Óskar Aron Stefánsson, Íris Helga Aradóttir og Alexander Jóhannesson í Gettu betur liðinu eru greinilega tilbúin fyrir viðureign kvöldsins.

Áfram FNV!