Auglýsing fyrir Söngkeppni NFNV 2020
Auglýsing fyrir Söngkeppni NFNV 2020

Nemendafélag FNV kynnir: Söngkeppni NFNV fimmtudaginn 20. febrúar 2020.

Í ár eru 12 atriði skráð til þátttöku auk stórkostlegra skemmtiatriða og allt bendir til að keppnin í ár verði með þeim glæsilegustu þar sem meira að segja veðrið hjálpaði til með því að gefa fleiri daga til undirbúnings.

Keppnin verður haldin á sal skólans, húsið opnar kl. 19:30 og dagskráin byrjar kl. 20:00.

Miðaverð:

  • 1500 kr fyrir nemendur FNV og grunnskóla nemendur
  • 2000 kr fyrir almenning
  • Frítt fyrir 10 ára og yngri

Miðar seldir við innganginn.