Sveinspróf í janúar, febrúar og mars

Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka næst:

  • Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í janúar 2021
    Umsóknarfrestur er til 4. nóvember 2020
  • Í byggingagreinum í janúar 2021
    Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2020
  • Í vélvirkjun í febrúar – mars 2021
    Umsóknarfrestur er til 15. desember 2020
  • Í snyrtifræði í febrúar – mars 2021
    Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2021
  • Í bifvélavirkjun í janúar – febrúar 2021
    Umsóknarfrestur er til 1. desember 2020
  • Í hársnyrtiiðn í febrúar – mars 2021
    Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2021

Nánari dagsetningar verða birtar á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir.

Með umsókn skal leggja fram afrit námssamnings, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2020.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs, www.idan.is, og á skrifstofu Iðunnar.