Mynd með frétt
Mynd með frétt

Skólahald hefst skv. stundatöflu miðvikudaginn 6. janúar kl. 8:00. Stundaskrár verða aðgengilegar í Innu mánudaginn 4. janúar. Opnað verður fyrir óskir um töflubreytingar í INNU sama dag. Töflubreytingum lýkur miðvikudaginn 6. janúar. Heimavist skólans opnar kl. 17:00 þriðjudaginn 5. janúar.
Þeir nemendur sem ekki fá lausn sinna mála geta fengið viðtal við áfangastjóra, aðstoðarskólameistara, námsráðgjafa eða félagsráðgjafa. Leiðbeiningar um töflubreytingar í INNU er að finna á heimasíðu skólans.