Verðlaun fyrir Áhugaverðustu nýsköpunina

Finnur, Heiðar Birkir og Haraldur Holti
Finnur, Heiðar Birkir og Haraldur Holti

Á vorönn 2023 fór FNV af stað með áfanga sem kenndur er á landsvísu í samstarfi við Unga frumkvöðla. Ungir frumkvöðlar er metnaðarfullt verkefni sem snýst um að nemendur í framhaldsskólum landsins stofni eigið fyrirtæki utan um viðskiptahugmynd og miðar að því að efla skilning þeirra á fyrirtækjarekstri. Framkvæmdin er höfð eins raunveruleg og kostur er. Nemendur fjármagna stofnun fyrirtækis með sölu hlutabréfa, ráða í stöðugildi og búa til ítarlega viðskiptaáætlun og kynna svo fyrirtækið á fyrirtækjasmiðju. Að lokum er fyrirtækið gert upp með ársreikningi og skýrslu í lok tímabilsins. Skólinn fékk dyggann stuðning frá Atvinnuráðgjafi á sviði nýsköpunar hjá SSNV sem hefur stutt við teymin frá FNV sem tóku þátt í verkefninu í vetur með ráðgjöf og fræðslu.

Annað tveggja teyma frá FNV sem tók þátt í fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla í Smáralind í lok mars var valið í úrslit og mætti fyrir dómara miðvikudaginn 26. apríl og þann 27. apríl kynnti það svo viðskiptahugmyndina sína á Uppskeruhátíð ungra frumkvöðla í höfuðstöðvum Arion banka . Alls voru 700 nemendur á bak við 160 fyrirtæki sem tóku þátt í fyrirtækjasmiðjunni og voru aðeins 30 teymi valin til úrslita. Þar á meðal var fyrirtækið H. Hampur frá FNV sem er hrávinnslufyrirtæki sem vinnur þráð úr hampi til textílnota. Á bakvið viðskiptahugmyndina standa Haraldur Holti Líndal, Heiðar Birkir Helgason og Finnur Sorinsson. Hér er hægt að sá myndband þar sem fyrirtækið er kynnt: https://www.youtube.com/watch?v=lQE_0npeI9k